Fotbolti.net
18.08.19 - 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Pepsi Max-deildin: Stjarnan gekk frá ÍA í seinni hálfleik

Stjarnan er í fjórða sæti.

Stjarnan er í fjórða sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan 3 - 1 ÍA
1-0 Sölvi Snær Guðbjargarson ('25 )
1-1 Aron Kristófer Lárusson ('45 )
2-1 Þorsteinn Már Ragnarsson ('46 )
3-1 Baldur Sigurðsson ('70 )
Lestu nánar um leikinn
Stjarnan komst aftur á sigurbraut í Pepsi Max-deildinni eftir tap á Akureyri í síðustu umferð. Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá ÍA upp á síðkastið. Stjarnan og ÍA mættust í síðasta leik dagsins í Pepsi Max-deildinni.

Stjarnan tók forystuna á 25. mínútu. Sölvi Snær Guðbjargarson, fæddur 2001, skoraði sitt annað mark í sumar. „Eyjólfur rennir boltanum á Sölva sem er rétt fyrir innan vítateiginn og á skot sem breytir um stefnu af Halli Flosa og fer í stöng og inn!" skrifaði Elvar Geir í beinni textalýsingu.

Gestirnir af Skaganum gáfust ekki upp og þeir jöfnuðu með sprellimarki rétt undir lok fyrri hálfleiks. Aron Kristófer Lárusson, sem Skagamenn sóttu úr Þór í sumar, skoraði þá beint úr hornspyrnu. Staðan 1-1 og þannig var hún í hálfleik.

Á fyrstu mínútu seinni hálfleiks komst Stjarnan aftur yfir. Markið skoraði Þorsteinn Már Ragnarsson eftir undirbúning frá hinum efnilega Sölva Snæ.

Þetta var ekki lengi að gerast í seinni hálfleiknum. Þegar 20 mínútur voru til leiksloka skoraði Baldur Sigurðsson og gerði út af við leikinn fyrir Stjörnuna. Hann skoraði eftir hornspyrnu Jósef Kristins.

Stjörnumenn voru líklegri til að bæta við fjórða markinu en ÍA að minnka muninn á síðustu mínútunum.

Lokatölur 3-1 fyrir Stjörnuna sem er í fjórða sæti með 27 stig. ÍA er með 22 stig í sjöunda sæti.

Önnur úrslit kvöldsins:
Fyrsta stig ÍBV síðan 2. júní
Stefan Alexander bjargaði stigi gegn HK
Pepsi Max-deildin: Brandur með bæði í endurkomusigri
Baldur gerði þriðja markið.

Baldur gerði þriðja markið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.