18.08.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Aubameyang opnaði markareikninginn í fyrstu umferð La Liga

Pierre-Emerick Aubameyang fagnaði markinu með stæl.

Mynd: EPA

Pierre-Emerick Aubameyang gekk í sumar í raðir Deportivo La Coruna en liðið er að spila í La Liga í fyrsta sinn síðan liðið féll árið 2018.
Hinn 37 ára gamli Aubameyang, sem lék meðal annars með Borussia Dortmund, Arsenal og Barcelona, kom frá Marseille í sumar.
Hann opnaði markareikning sinn í fyrsta leik en hann kom Deportivo yfir gegn Elche í fyrstu umferðinni í gær.
Hann fagnaði með stæl en Elche jafnaði á 76. mínútu þegar Marc Aguado skoraði með skalla og leikar enduðu 1-1.
Úrslit helgarinnar í fyrstu umferð La Liga:
Sevilla - Rayo Vallecano 2-1
Deportivo Alaves - Getafe 3-0
Espanyol - Levante 3-0
Racing Santander - Villarreal 2-2
Deportivo - Elche 1-1
Stórliðin Real Madrid og Barcelona leika sína fyrstu deildarleiki um komandi helgi (gegn Espanyol og Elche) en Atletico Madrid spilar gegn Malaga annað kvöld.

TENGT EFNI
Aubameyang semur við nýliða í spænsku úrvalsdeildinni (Staðfest)
AubameJump ????#LaLigaHighlights pic.twitter.com/cXGFjvNewz
— RC Deportivo (@RCDeportivo) August 17, 2026