18.08.26 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson
Fermín: Smá sorgmæddur að skilja við treyjuna
,,Julián Alvarez myndi passa fullkomlega við leikstílinn okkar"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fermín López samþykkti að kveðja treyju númer 16 hjá Barcelona þegar Rodri skrifaði undir samning við Spánarmeistarana og bað um treyjunúmerið fyrir sjálfan sig.

TENGT EFNI
Rodri fær treyju númer 16 hjá Fermín
Fermín segir það vera sárt að kveðja treyjuna en nú hefst nýr kafli hjá honum með treyju númer 7 á bakinu.
„Rodri mun gefa okkur mikil gæði á miðjunni, það er stórkostlegt að fá hann til liðs við okkur. Ég er smá sorgmæddur að skilja við treyju númer 16 en hún fer í góðar hendur," sagði Fermín. „Ég fæ treyju númer 7 í staðinn, mér hefur alltaf líkað við sjöuna."
Fermín ræddi einnig um Julián Alvarez, framherja Atlético Madrid og argentínska landsliðsins sem var sterklega orðaður við Barcelona í sumar. Alvarez dreymir um að spila fyrir Spánarmeistarana en Atlético er ekki reiðubúið til að selja stjörnuleikmann sinn.
„Mér líkar mjög vel við Julián. Hann er stórkostlegur leikmaður en hann er samningsbundinn Atlético Madrid svo ég vil ekki vera að tjá mig of mikið um hann. Ég get bara sagt að ég held að hann myndi passa fullkomlega við leikstílinn okkar."