Fotbolti.net
18.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Harry Kane: Mikilvægt að hefja þessar viðræður

Harry Kane: Mikilvægt að hefja þessar viðræður
Canon

Mynd: EPA

Markaskorarinn mikli Harry Kane er aðeins með eitt ár eftir af samningi við Þýskalandsmeistara FC Bayern.
Kane sest við samningaborðið
TENGT EFNI

Kane sest við samningaborðið

Hann er 33 ára gamall og eru ýmis félög áhugasöm um að tryggja sér þjónustu hans. Þar má nefna hans fyrrum félag Tottenham Hotspur, Spánarmeistara Barcelona og ýmis stórveldi í Sádi-Arabíu.

„Það er mikilvægt að hefja þessar viðræður á næstu vikum útaf því að síðasta samningsárið er að hefjast. Ég er mjög rólegur yfir þessu öllu saman og mér líður eins og félagið sé það líka," sagði Kane, sem hefur verið algjör lykilmaður frá félagaskiptunum til Bayern.

Kane hefur í heildina skorað 146 mörk í 147 leikjum á þremur árum hjá Bayern, auk þess að raða inn mörkum með enska landsliðinu. Hann hefur einnig verið landsliðsfyrirliði síðustu átta ár.

Honum líður vel með fjölskyldunni í München og eru taldar afar litlar líkur á því að hann sé að hugsa um að skipta um félag.

Talið er að Bayern muni bjóða Kane þriggja ára samning þrátt fyrir hækkandi aldur.
Harry Kane: Mikilvægt að hefja þessar viðræður
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.