Fotbolti.net
18.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Hull vann kappið við Barcelona og Inter

Hull vann kappið við Barcelona og Inter
Canon

Mynd: EPA

Hull City, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, gengu frá kaupum á Lucas Herrington á dögunum eftir að hann sýndi góða frammistöðu með ástralska landsliðinu á heimsmeistaramótinu.
Hull fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Borga aftur metfé
TENGT EFNI

Hull fær tvo nýja leikmenn (Staðfest) - Borga aftur metfé

Herrington hafði vakið athygli ýmissa stórvelda áður en HM fór af stað, en MLS-félagið Colorado Rapids hafnaði tilboðum frá Barcelona, Inter og Napoli meðal annars.

Eftir heimsmeistaramótið blandaði Hull sér við baráttuna og ákvað að ganga frá kaupunum með að greiða 17 milljónir punda, sem samsvara 20 milljónum evra, fyrir.

Herrington er 18 ára gamall og varð í sumar yngsti leikmaður í sögu MLS deildarinnar til að taka þátt í heimsmeistaramótinu.

Hann gerir fimm ára samning við Hull og er það draumur að rætast að fá að spreyta sig í efstu deild enska boltans.

Herrington hefur mikla trú á verkefninu hjá Hull City, sem fór afar óvænt upp úr Championship deildinni á síðustu leiktíð. Liðið tryggði sér sæti í deild þeirra bestu eftir umdeilda umspilskeppni sem einkenndist af njósnamáli.

Herrington er ellefti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Hull City í sumar eftir að félagið festi kaup á Nobel Mendy, Konstantinos Tzolakis og Joe Gelhardt meðal annars.

„Ef Lucas stendur sig vel þá er þetta kjörið tækifæri fyrir hann til að máta sig við bestu leikmenn heims," segir Buddy Farah, umboðsmaður Herrington. „Fyrir átján ára fótboltamann er hvergi til betri staður til að þróa sinn leik."
Hull vann kappið við Barcelona og Inter
Canon

Mynd: EPA

Hull vann kappið við Barcelona og Inter
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.