Fotbolti.net
18.08.26 - 22:03
Ívan Guðjón Baldursson

Leggja fram opinbert tilboð í Watkins

Tekur við af Darwin Núnez

Leggja fram opinbert tilboð í Watkins
Canon

Mynd: EPA

Enski landsliðsframherjinn Ollie Watkins gæti verið á leið til Sádi-Arabíu þar sem risasamningur bíður hans hjá Al-Hilal.
Watkins með samkomulag við Al-Hilal
TENGT EFNI

Watkins með samkomulag við Al-Hilal

Watkins vill skipta um félag en hann er með tvö ár eftir af samningi við Aston Villa, þar sem hann er lykilmaður í sóknarleiknum.

Þrítugur Watkins skoraði 21 mark í 55 leikjum á síðustu leiktíð og reyndist gríðarlega mikilvægur er Villa tryggði sér óvænt Meistaradeildarsæti.

Al-Hilal hefur verið að reyna við Watkins í sumar og hafnaði Villa tveimur tilboðum frá stórveldinu, sem spilar undir stjórn Simone Inzaghi. Nú hefur Al-Hilal lagt fram opinbert tilboð í leikmanninn, sem Fabrizio Romano segir hljóða upp á 45 milljónir evra í heildina.

Hjá Al-Hilal myndi Watkins verða liðsfélagi leikmanna á borð við Crysencio Summerville, Rúben Neves og Theo Hernández. Hann á að taka sæti Darwin Núnez í leikmannahópnum.

Verði Watkins seldur er líklegt að Villa leiti sér að nýjum framherja, en Tammy Abraham og Brian Madjo eru einu framherjarnir sem yrðu eftir í hópnum. Talið er að Villa hafi áhuga á Nicolas Jackson hjá Chelsea.
Leggja fram opinbert tilboð í Watkins
Canon

Mynd: EPA

Leggja fram opinbert tilboð í Watkins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.