Fotbolti.net
18.08.26 - 20:38
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: Auðvelt fyrir KR og Hauka

Kara með þrennu

Lengjudeild kvenna: Auðvelt fyrir KR og Hauka
Canon

Mynd: KR

Kvennaboltinn
Síðustu leikjum kvöldsins var að ljúka í Lengjudeild kvenna þar sem KR og Haukar skópu þægilega sigra.
Lengjudeild kvenna: Markalaust á Selfossi
TENGT EFNI

Lengjudeild kvenna: Markalaust á Selfossi

Kara Guðmundsdóttir skoraði þrennu í stórsigri KR á útivelli gegn Keflavík.

Rakel Inga Ágústsdóttir náði forystunni fyrir heimakonur snemma leiks en Kara svaraði með þrennu, áður en Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir og Rakel Grétarsdóttir innsigluðu 1-5 sigur í uppbótartíma.

KR er í öðru sæti eftir sigurinn, með 26 stig eftir 14 umferðir. Tveimur stigum fyrir ofan Hauka sem lentu ekki í vandræðum gegn botnliði Tindastóls.

Rakel Lilja Hjaltadóttir, Maggý Lárentsínusdóttir og Valgerður Ósk Valsdóttir skoruðu mörk Hauka í auðveldum sigri á útivelli.

Tindastóll fellur niður í 2. deild en Keflavík er fimm stigum frá fallsæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

Keflavík 1 - 5 KR
1-0 Rakel Inga Ágústsdóttir ('4 )
1-1 Kara Guðmundsdóttir ('24 )
1-2 Kara Guðmundsdóttir ('28 )
1-3 Kara Guðmundsdóttir ('43 )
1-4 Valgerður Gríma Sigurjónsdóttir ('90 )
1-5 Rakel Grétarsdóttir ('90 )

Tindastóll 0 - 3 Haukar
0-1 Rakel Lilja Hjaltadóttir ('16 )
0-2 Maggý Lárentsínusdóttir ('29 )
0-3 Valgerður Ósk Valsdóttir ('59 )
Lengjudeild kvenna: Auðvelt fyrir KR og Hauka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta14+2232
2KR14+1726
3Haukar14024
4Selfoss14+723
5HK14+523
6ÍA14+721
7FHL14018
8Keflavík14+517
9Völsungur14-512
10Tindastóll14-583
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.