Fotbolti.net
18.08.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Memphis tekur á sig launalækkun

Memphis Depay.

Memphis Depay.

Canon

Mynd: EPA

Memphis Depay hefur samþykkt að taka á sig launalækkun til að vera áfram hjá Corinthians í Brasilíu. Á dögunum hafði félagið ákveðið að framlengja ekki við hann.

Memphis lét þá reiði sína í ljós og sagði að framkoma félagsins væri óásættanleg þar sem munnlegt samkomulag hefði verið gert.

Osmar Stabile, forseti Corinthians, hefur nú staðfest að leikmaðurinn hefði samþykkt að taka á sig launalækkun og samkomulag sé í höfn.

„Þetta var langt og flókið ferli en gekk á endanum upp. Hann lækkaði kröfur sínar," segir Stabile.
Memphis reiður út í Corinthians
TENGT EFNI

Memphis reiður út í Corinthians

Memphis hefur skorað 20 mörk í 79 leikjum fyrir Corinthians og átti þátt í að liðið vann brasilísku bikarkeppnina árið 2025 og Ofurbikar Brasilíu fyrr á þessu ári. Hann kom til félagsins 2024.

Memphis, sem er fyrrum leikmaður Manchester United og Barcelona, er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi en tókst ekki að skora í þeim þremur leikjum sem hann spilaði þegar liðið féll úr leik í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins 2026.
Memphis er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi.

Memphis er markahæsti leikmaður hollenska landsliðsins frá upphafi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.