Fotbolti.net
18.09.19 - 12:24
Magnús Már Einarsson

Eiður Smári: Nánast vanvirðing við liðsfélagana

Ross Barkley.

Ross Barkley.

Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Það er nánast vanvirðing við liðsfélaga þína að gera eitthvð eins og Ross Barkley gerði í kvöld,"</I> sagði Eiður Smári Guðjohnsen á BT Sport í gærkvöldi eftir 1-0 tap Chelsea gegn Valencia í Meistaradeildinni.

Barkley klikkaði á vítaspyrnu undir lok leiks en hann þurfti að rífast við liðsfélaga sína áður en vítaspyrnan var tekin.
Frank Lampard, stjóri Chelsea, sagði eftir leik að Barkley hafi átt að taka vítaspyrnuna en ljóst er að leikmenn Chelsea voru ekki sammála því hver ætti að fara á punktinn.

„Að skapa þessi læti og rifrildi milli þín og liðsfélaga þinna og klikka síðan á vítaspyrnunni, þú setur svo mikið meiri pressu á þig miðað við að taka bara vítaspyrnuna," sagði Eiður.

Sjá einnig:
Lampard: Barkley er vítaskyttan okkar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.