Fotbolti.net
18.09.20 - 19:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

2. deild: KF skoraði tvö furðumörk í sigri á Haukum - Vonir Hauka litlar

Sachem fagnar marki. Mynd frá því fyrr í sumar.

Sachem fagnar marki. Mynd frá því fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Haukar 1 - 2 KF
1-0 Tómas Leó Ásgeirsson ('44)
1-1 Halldór Mar Einarsson ('52)
1-2 Sachem Wilson ('66)
Haukar tóku á móti KF í seinni leiki dagsins í 2. deild karla. Fyrri leiknum lauk með útisigri ÍR gegn Njarðvík.

Haukar komust yfir á 44. mínútu þegar Tómas Leó kom fyrirgjöf Nikola Dejan Djuric í netið með flottum tilþrifum. KF jafnaði með furðumarki á 52. mínútu þegar Halldór Mar átti skot sem fór af varnarmanni Hauka og snerist einhvern veginn í markið, mögulega um sjálfsmark að ræða.

Á 66. mínútu gerði Jón Freyr markvörður Hauka skelfileg mistök þegar hann ætlaði að koma boltanum á samherja. Jón kastaði boltanum út og fór boltinn af hælnum á varnarmanni Hauka beint á Sachem Wilson sem stóð inn á vítateig Hauka og skoraði í opið netið. Algjört sprellimark.

Fleiri urðu mörkin ekki og Haukar nú svo gott sem úr leik í baráttunni um sæti í næstefstu deild. Haukar eru með 30 stig þegar fimm leikir eru eftir og toppliðin tvö eiga leik til góða. KF er með 25 stig í 6. sæti, sætinu fyrir neðan Hauka.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.