21.10.26 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson
Kane getur jafnað met Ronaldo í næstu umferð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Harry Kane skoraði í tíunda leiknum í röð í Meistaradeildinni þegar Bayern München gerði 2-2 jafntefli við Arsenal í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
Kane skoraði síðara mark Bæjara úr vítaspyrnu í síðari hálfleiknum og heldur áfram ótrúlegu gengi sínu á tímabilinu.
Þetta var tíunda mark Kane í öllum keppnum á tímabilinu, en enn merkilegra er að hann hefur nú skorað í tíu leikjum í röð í Meistaradeildinni.
Hann á því möguleika á að jafna ótrúlegt met Cristiano Ronaldo í næstu umferð, en Portúgalinn er sá eini í sögunni sem hefur skorað í ellefu leikjum í röð í keppninni.
Bæjarar heimsækja Atlético Madríd í næstu umferð og takist Kane að skora þar jafnar hann met Ronaldo. Hann gæti síðan slegið metið þegar Bayern heimsækir Lille í Frakklandi þann 25. nóvember.

10 - Harry Kane ist erst der zweite Spieler, der in 10 Spielen in Folge in der UEFA Champions League trifft, Cristiano Ronaldo war dies zuvor von 2017 bis 2018 sogar in 11 Spielen in Folge gelungen. @FCBayern
— OptaFranz (@OptaFranz) October 21, 2026
Thron. https://t.co/lM8oHQSdzs