21.10.26 - 21:48
Brynjar Ingi Erluson
Rice: Hann er augljós sigurvegari Ballon d'Or

Declan Rice og Harry Kane í leiknum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Declan Rice og Harry Kane í leiknum

Mynd: EPA

Declan Rice, leikmaður Arsenal, fór fögrum orðum um samlanda sinn Harry Kane eftir 2-2 jafntefli liðanna í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
Kane skoraði síðara mark Bæjara í kvöld, en hann hefur verið nánast óstöðvandi á þessu ári og er einn þeirra sem koma sterklega til greina í kjörinu um besta fótboltamann heims.
Rice, sem bjargaði stigi fyrir Arsenal undir lok leiksins, telur að Kane eigi Gullboltann skilið.
„Hann á Gullboltann skilið umfram alla aðra. Tölurnar tala sínu máli og hann hefur verið algjörlega stórkostlegur í ár. Þegar þú spilar með honum áttarðu þig á því hversu góður hann er og þegar þú spilar gegn honum finnurðu hversu erfitt það er.“
„Hann er einfaldlega fáránlega góður. Ég er heppinn að fá að spila með honum, en það er ekki jafn skemmtilegt að þurfa að mæta honum,“ sagði Rice.
Rice viðurkennir að það hafi verið erfitt að eiga við Bæjara, en segir Arsenal hafa sýnt mikinn vilja og fundið leiðir til að brjóta niður varnarleik heimamanna.
„Þegar þú mætir liði sem pressar maður á mann um allan völlinn þarftu að hafa ákveðnar grundvallarreglur í huga. Þeir elta þig hvert sem þú ferð, en mér tókst að hrista minn mann af mér, hélt áfram hlaupinu og komst í gegn.“
„Ég er ótrúlega ánægður og Gyökeres hefur verið frábær þegar hann kemur inn af bekknum. Hann átti nokkur frábær hlaup og lagði svo upp markið.“
Rice segir hugarfar Arsenal-liðsins hafa skipt miklu máli og að leikmennirnir hafi ekki ætlað að mæta til München til að liggja í vörn.
„Þetta er það sem stjórinn hefur hamrað inn í okkur. Við ætlum ekki að koma hingað og leggjast í vörn. Bayern er eitt besta lið Evrópu á heimavelli og þess vegna er frábært að koma hingað og standa sig svona vel. Nú þurfum við bara að halda áfram,“ sagði Rice í lokin.