21.10.26 - 20:16
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo sendi Kvaratskhelia skilaboð - „Ég þekki þessa tilfinningu“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Portúgalski sóknarmaðurinn Cristiano Ronaldo sendi Khvicha Kvaratskhelia stuðningsskilaboð eftir að sá síðarnefndi sleit krossband í Meistaradeildinni í gær.

TENGT EFNI
Kvaratskhelia: Af hverju ég?
Georgíumaðurinn þurfti að fara meiddur af velli í síðari hálfleik eftir samstuð við Xavi Espart, leikmann Barcelona.
PSG staðfesti í dag að Kvaratskhelia hefði slitið krossband og yrði því frá keppni út tímabilið. Hann hefur nú fengið hlý skilaboð frá einum besta fótboltamanni allra tíma, sem hvetur hann til að gefast ekki upp þrátt fyrir þetta mikla áfall.
„Erfiðustu barátturnar í fótboltanum eru oft þær sem enginn sér. Ég þekki þessa tilfinningu, Kvara, en gleymdu aldrei hvað kom þér svona langt. Ekki láta eitt erfitt augnablik fá þig til að efast um hversu langt þú getur náð.“
„Haltu eldmóðinum áfram því það besta hjá þér á enn eftir að koma,“ skrifaði Ronaldo.

??????????? Cristiano Ronaldo with a beautiful message to Kvaratskhelia.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 21, 2026
“The hardest battles in football are often ones nobody sees”.
“I know that feeling, Kvara. But never forget what brought you this far, and don’t let a difficult moment make you doubt how far you can go. Keep that fire on. Your best is still to come”.
Cristiano is Kvara’s idol since he was a kid. ?

Mynd: EPA