21.10.26 - 23:18
Brynjar Ingi Erluson
Emery: Spiluðum mjög öruggan leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, var ánægður með að landa þriðja sigrinum í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
Villa vann þægilegan 3-1 sigur á Noregsmeisturum Viking á Villa Park og er enska liðið með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.
Emery var ánægður með frammistöðuna og fannst sínir menn hafa haft góð tök á leiknum, þótt þeir hefðu ef til vill orðið fullværukærir á köflum.
„Við spiluðum mjög öruggan leik. Við höfðum yfirhöndina í fyrri hálfleik og leið vel inni á vellinum, en byrjuðum síðari hálfleikinn ekki jafn vel og gáfum þeim færi á að setja pressu á okkur með nokkrum hornspyrnum.“
„Þegar á heildina er litið vorum við betra liðið og höfðum leikinn meira og minna í okkar höndum. Við erum mjög ánægðir með að hafa náð í þessi þrjú stig,“ sagði Emery.