21.10.26 - 19:05
Brynjar Ingi Erluson
„Þetta var eins og að horfa á fullorðna menn spila gegn krökkum“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Manchester United, segir að það hafi verið eins og að horfa á fullorðna menn spila gegn krökkum þegar United tapaði 4-1 fyrir Como í Meistaradeildinni í kvöld.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Man Utd fékk skell á Ítalíu - Hákon lagði upp í tapi
Como var með mikla yfirburði gegn slöku liði United og lék á als oddi í leiknum.
Ítalska liðið er nýliði í keppninni en það sást ekki á frammistöðunni, enda léku heimamenn sér að United á löngum köflum.
Starf Michael Carrick er sagt vera í hættu og Berbatov skilur vel hvers vegna, sérstaklega eftir frammistöðu liðsins í kvöld.
„Eftir svona frammistöðu fer fólk að spyrja spurninga. Eru þetta leikmenn sem geta spilað fyrir Man Utd á hæsta stigi? Erum við með rétta stjórann? Erum við á réttri leið?“
„Eftir svona leiki fer fólk að tala um að við þurfum betri leikmenn og allt mögulegt annað. En hvað á maður eiginlega að segja eftir svona frammistöðu?“
„Ég er hræddur um að eftir svona tap verði sífellt erfiðara að halda því fram að allir séu að gera sitt besta. Það leit að minnsta kosti ekki þannig út. Como lék sér að þeim og þetta var eins og að horfa á fullorðna menn spila gegn krökkum,“ sagði Berbatov á TNT Sports.

"It was like men against kids"
— Football on TNT Sports (@footballontnt) October 21, 2026
Dimitar Berbatov on Manchester United's 4-1 loss against Como ?????
????? @Sports_EmmaD | ???? Stream on TNT Sports & HBO Max: https://t.co/fRCRh6tXYB https://t.co/m15DzlYsKb