21.10.26 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Carrick: Þetta er einfaldlega ekki boðlegt

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, segir frammistöðu liðsins í 4-1 tapinu gegn Como hafa verið með öllu óásættanlega og bað stuðningsmenn félagsins afsökunar eftir leikinn.

TENGT EFNI
Fernandes gagnrýndi þjálfarateymið eftir afhroðið
Man Utd átti skelfilegan leik gegn Como sem sundurspilaði liðið á löngum köflum.
United hefur nú leikið sjö leiki í röð án sigurs í öllum keppnum og hefur liðið ekki átt jafn slæma hrinu síðan árið 2015.
Carrick gekk til stuðningsmanna United eftir leikinn og bað þá afsökunar á frammistöðunni. Í viðtali eftir leikinn sagði hann hana með öllu óásættanlega.
„Þetta voru meira en bara vonbrigði. Ég held að allir verði að taka ábyrgð á þessu og ég tek sjálfur hundrað prósent ábyrgð á liðinu og frammistöðunni. Ábyrgðin endar hjá mér og ég sætti mig alveg við það. Ég tek því, en sem maður sem hefur stutt þetta félag í langan tíma finnst mér óásættanlegt að horfa upp á svona frammistöðu. Þú getur ekki valið þér hvenær þú leggur þig allan fram og hvenær ekki. Ég verð bara að segja það,“ sagði Carrick.
Eins og áður kom fram bað hann þá stuðningsmenn sem ferðuðust til Como afsökunar eftir leikinn.
„Mér þykir óendanlega vænt um stuðningsmennina. Þeir eru hjartað í þessu félagi og verða það alltaf. Mér fannst ég verða að biðja þá afsökunar eftir að þeir höfðu ferðast alla þessa leið til að horfa upp á svona frammistöðu. Ég finn virkilega til með þeim og það eru engar afsakanir fyrir þessu. Þetta er einfaldlega ekki boðlegt.“
Nýtur þú enn stuðnings stjórnarinnar?
„Þetta snýst ekki um mig. Nú þurfum við að melta það sem gerðist í þessum leik og hvernig þetta fór. Það er það eina sem skiptir mig máli í augnablikinu,“ sagði Carrick.