Fotbolti.net
21.10.26 - 23:13
Brynjar Ingi Erluson

Fabregas sagði liðinu að slaka á gegn Man Utd - „Sé eftir því“

Cesc Fabregas

Cesc Fabregas

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Cesc Fabregas, þjálfari ítalska liðsins Como, segist sjá eftir því að hafa sagt leikmönnum sínum að hætta að hlaupa jafn mikið undir lok 4-1 sigursins gegn Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Man Utd fékk skell á Ítalíu - Hákon lagði upp í tapi
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Man Utd fékk skell á Ítalíu - Hákon lagði upp í tapi

Como sundurspilaði Manchester United og vann sögulegan og sannfærandi sigur á enska liðinu.

Þegar Como var komið í 4-0 ákvað Fabregas hins vegar að draga úr ákefðinni og sagði leikmönnum sínum að hætta að pressa jafn mikið til að spara kraftana fyrir leik helgarinnar.

„Ég sé svolítið eftir síðustu tíu mínútunum því það var ég sem sagði leikmönnunum að hægja á leiknum. Við eigum annan leik eftir skammt og í stöðunni 4-0 fannst mér við geta stjórnað leiknum án þess að eyða jafn mikilli orku.“

„Ég sagði þeim að hætta að hlaupa svona mikið og halda sig frekar í kringum miðsvæðið. Ég sé eftir þeirri ákvörðun því yfirleitt er ég sá fyrsti til að hvetja þá til að berjast alveg fram á síðustu mínútu.“

„Markið sem við fengum á okkur sveið því við höfðum dregið úr ákefðinni og farið úr því varnarskipulagi sem við höfðum haldið okkur við. Það var mér að kenna,“
sagði Fabregas.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.