21.10.26 - 22:13
Brynjar Ingi Erluson
Nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeildinni

Amin Cosic þreytti frumraun sína í Meistaradeildinni

Mynd: Aðsend

Amin Cosic varð í kvöld nítjándi Íslendingurinn til að spila í riðla- eða deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Rice kom Arsenal til bjargar - Aston Villa, Real Madrid og Betis með fullt hús
Amin gekk í raðir Viking frá KR í sumar og sat á varamannabekknum í fyrstu tveimur leikjum norska liðsins í Meistaradeildinni.
Hann þreytti síðan frumraun sína í keppninni í kvöld þegar hann kom inn á þegar stundarfjórðungur var til leiksloka í 3-1 tapinu gegn Aston Villa á Villa Park. Þar með varð hann nítjándi Íslendingurinn til að spila í riðla- eða deildarkeppni Meistaradeildarinnar.
FCK hefur verið áberandi í þessum hópi, en alls hafa átta Íslendingar þreytt frumraun sína í keppninni með danska félaginu. Það eru þeir Ragnar Sigurðsson, Rúrik Gíslason, Sölvi Geir Ottesen, Kári Árnason, Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson, Orri Steinn Óskarsson og Viktor Bjarki Daðason.
Eiður Smári Guðjohnsen lék í keppninni með Chelsea og Kolbeinn Sigþórsson með Ajax. Birkir Bjarnason lék með Basel, Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon með CSKA Moskvu árið 2018 og Mikael Neville Anderson með Midtjylland fyrir sex árum.
Alfreð Finnbogason lék með Olympiakos á eftirminnilegu tímabili þar sem hann skoraði meðal annars gegn Arsenal.
Árni Gautur Arason varð fyrstur Íslendinga til að spila í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þegar hann stóð í marki Rosenborg árið 1998. Eyjólfur Sverrisson fetaði síðan í fótspor hans ári síðar með Herthu Berlín og varð þar með annar Íslendingurinn til að ná þeim áfanga.
Helgi Sigurðsson kom þá við sögu í Meistaradeildinni í leik með Panathinaikos gegn Valencia á Mestalla leikvanginum árið 2001. Valencia fór í úrslit það ár.