Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 18. september 2020 10:07
Magnús Már Einarsson
Arnar Halls hjálpar ÍR-ingum
Arnar Hallsson.
Arnar Hallsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Hallsson mun hjálpa ÍR-ingum í 2. deild karla út þetta tímabilið en hann verður ráðgjafi hjá liðinu.

Jóhannes Guðlaugsson hefur verið þjálfari ÍR frá því vorið 2019 en Arnar verður nú honum til ráðgjafar.

Arnar þjálfaði Aftureldingu 2018 og 2019 en undir hans stjórn vann liðið 2. deildina.

Í sumar hefur Arnar leikgreint leiki í Pepsi Max-deildinni fyrir Fótbolta.net.

Að sögn Magnúsar formanns mun Arnar verða ÍR-ingum til aðstoðar út þetta leiktímabil og verður með liðinu í næsta leik þess sem verður í Njarðvík í dag klukkan 16:45.

ÍR er í 9. sæti í 2. deildinni, þremur stigum frá fallsæti.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner