Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. september 2020 23:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjudeild kvenna: Natasha með tvö í sigri Keflavíkur
Natasha öflug.
Natasha öflug.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 2 - 3 Keflavík
1-0 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('179
1-1 Natasha Moraa Anasi ('34)
1-2 Kara Petra Aradóttir ('54)
2-2 Tinna Jónsdóttir ('58)
2-3 Natasha Moraa Anasi ('68)

Grótta mætti Keflavík í seinni leik kvöldsins í Lengjudeild kvenna. Leikurinn var heimaleikur Gróttu en leikið var á Kópavogsvelli þar sem bilun varð á flóðljósunum á Vivaldi vellinum, heimavelli Gróttu.

Leikurinn var fjörugur og Grótta skoraði opnunarmarkið þegar Lovísa Davíðsdóttir kom boltanum í netið á 17. mínútu. Natasha Anasi jafnaði á 34. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Kara Petra Aradóttir kom Keflavík yfir á 54. mínútu en á 58. mínútu jafnaði Tinna Jónsdóttir fyrir Gróttu. Tíu mínútum síðar skoraði Natasha sitt annað mark og tryggði Keflavík stigin þrjú.

Keflavík er með 33 stig í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Tindastóli og sjö stigum fyrir ofan Hauka í 3. sætinu. Haukar og Tindastoll eiga leik til góða. Grótta er svo í 4. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner