Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 18. september 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hópurinn hjá U17 kvenna: Sex Valskonur og fjórir Blikar
Fyrstu leikir Magnúsar
Emelía Óskarsdóttir er í hópnum.
Emelía Óskarsdóttir er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Magnús Örn Helgason
Magnús Örn Helgason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið tuttugu leikmenn í hóp sem tekur þátt í undankeppni EM 2022.

Ísland er þar í riðli með Norður Írlandi, Serbíu og Spáni og verður riðillinn leikinn í Serbíu dagana 24.-30. september.

Þetta eru fyrstu leikir liðsins undir stjórnar Magnúsar, en hann tók á dögunum við af Jörundi Áka Sveinssyni.

Sex leikmenn frá Val/KH eru í hópnum og fjórir frá Breiðabliki/Augnabliki. Þá koma tveir leikmenn úr Gróttu og tveir úr Þór. Emelía Óskarsdóttir er í hópnum en hún er á mála hjá BSF í Danmörku.

Hópurinn:
Harpa Helgadóttir - Augnablik
Margrét Lea Gísladóttir - Augnablik
Margrét Brynja Kristinsdóttir - Breiðablik
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir - Breiðablik
Emelía Óskarsdóttir - BSF
Elísa Lana Sigurjónsdóttir - FH
Lilja Liv Margrétardóttir - Grótta
Lilja Davíðsdóttir Scheving - Grótta
Iðunn Rán Gunnarsdóttir - KA
Eva Stefánsdóttir - KH
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir - KH
Snæfríður Eva Eiríksdóttir - KH
Telma Steindórsdóttir - KH
Ísabella Sara Tryggvadóttir - KR
Eyrún Embla Hjartardóttir - Stjarnan
Margrét Rún Stefánsdóttir - Tindastóll
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur
Katla Tryggvadóttir - Valur
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir - Þór
Steingerður Snorradóttir - Þór
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner