Fotbolti.net
18.09.26 - 22:33
Ívan Guðjón Baldursson

Alonso: Þurfum að bæta meira en bara varnarleikinn

Alonso: Þurfum að bæta meira en bara varnarleikinn
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso þjálfari Chelsea var vonsvikinn eftir lokaflautið í 3-0 tapi gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
England: Brentford tók Chelsea í kennslustund
TENGT EFNI

England: Brentford tók Chelsea í kennslustund

Staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik og sköpuðu heimamenn í liði Brentford betri færi eftir leikhléð sem þeir nýttu.

„Ég er mjög vonsvikinn eftir þetta tap, við gerðum mistök sem má ekki gera í úrvalsdeildinni og var refsað fyrir það. Það er ekki nóg að spila vel í 45 mínútur, við verðum að vera samkeppnishæfir allan leikinn. Hver einasta ákvörðun getur skipt sköpum og eftir að þeir skora þá höfum við ennþá mikinn tíma til að snúa stöðunni við, en við gerðum það ekki. Við vorum ekki með stjórn á leiknum og svo varð þetta erfiðara eftir að þeir tvöfölduðu forystuna," sagði hundsvekktur Alonso.

„Það er margt sem við þurfum að bæta við okkar leik. Það eru taktískir hlutir og hvernig við verjumst. Við verðum að bæta varnarleikinn og hugarfarið en það er ýmislegt annað líka. Við verðum að gera betur, sem liðsheild og sem einstaklingar, og ekki bara varnarlega. Það er ýmislegt sem við verðum að laga bæði með og án boltans."

Joao Pedro, helsti markaskorari Chelsea, var ekki með vegna meiðsla.

„Auðvitað söknuðum við hans en það er engin afsökun, við verðum að gera betur. Við þurfum að horfa í spegilinn og bæta okkur. Það er ennþá nóg eftir af tímabilinu og margt sem við þurfum að bæta."

Yngstur í sögu Chelsea - Alonso nálgast slæmt met
TENGT EFNI

Yngstur í sögu Chelsea - Alonso nálgast slæmt met

Alonso: Þurfum að bæta meira en bara varnarleikinn
Canon

Mynd: EPA

Alonso: Þurfum að bæta meira en bara varnarleikinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.