18.09.26 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Dýrmætt sigurmark í titilbaráttunni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 1 - 0 Stjarnan
1-0 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('90)

Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Stjarnan
Titilbaráttulið FH tók á móti Stjörnunni í efri hluta Bestu deildar kvenna í dag og var staðan markalaus eftir fjörugan fyrri hálfleik.
Heimakonur í Hafnarfirði voru talsvert sterkara liðið og fengu nokkur úrvalsfæri til að skora en tókst ekki að setja boltann framhjá Bridgette Skiba markverði Stjörnunnar.
FH fékk frábær færi en Stjarnan varðist vel og átti sínar rispur. Seinni hálfleikurinn var talsvert jafnari, hann var kaflaskiptur og endurheimti FH yfirhöndina á lokakaflanum.
Heimakonur gerðu sig hættulegar og komust nálægt því að skora en boltinn virtist ekki vilja rata í netið, allt þar til á lokamínútu venjulegs leiktíma þegar Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir gerði mjög vel að klára með marki.
Thelma Lóa Hermannsdóttir undirbjó markið með frábærri stoðsendingu og gerði Andrea vel að fleygja sér á boltann þegar fyrirgjöfin kom inn í vítateig.
Þetta reyndist sigurmark leiksins og tryggði Andrea Rán liðinu gríðarlega dýrmæt stig. FH jafnar ríkjandi meistara Breiðabliks á toppi deildarinnar með þessum sigri, þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.
FH er með 40 stig eftir 19 umferðir en Stjarnan situr eftir í fjórða sæti með 26 stig, einu stigi á eftir ÍBV sem á leik til góða.