18.09.26 - 20:08
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deild kvenna: Víkingar brjálaðir eftir jafntefli

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram 2 - 2 Víkingur R.
1-0 Taylor Marie Hamlett ('33)
1-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('54)
1-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('84)
2-2 Alda Ólafsdóttir ('88)
1-0 Taylor Marie Hamlett ('33)
1-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('54)
1-2 Jasmín Erla Ingadóttir ('84)
2-2 Alda Ólafsdóttir ('88)
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 Víkingur R.
Það var mikil spenna og mikil læti þegar Fram og Víkingur R. mættust í hörkuslag í fallbaráttu Bestu deildar kvenna í eina leik kvöldsins í neðri hlutanum.
Víkingar voru sterkari aðilinn og sköpuðu meiri hættu sofnuðu á verðinum og fengu mark í bakið þegar Taylor Hamlett setti boltann í netið. Hún kom heimakonum yfir eftir frábæran undirbúning frá Brookelynn Entz.
Gestunum tókst að jafna snemma í síðari hálfleik með marki frá Þórdísí Hrönn Sigfúsdóttur. Hún gerði vel að skora eftir þríhyrningsspil við Jasmín Erlu Ingadóttur.
Víkingur verðskuldaði jöfnunarmarkið og fékk færi til að ná forystunni en Framarar svöruðu fyrir sig með skottilraun sem hafnaði í slánni.
Þegar leikurinn virtist vera að róast niður endurheimtu Víkingar forystuna. Taylor missti boltann klaufalega frá sér til Bergdísar Sveinsdóttur sem renndi boltanum á Jasmín í dauðafæri og staðan orðin 1-2.
Jón Páll Pálmason, aðstoðarþjálfari Víkings R., fékk tvö gul spjöld eftir að gestirnir náðu forystunni. Hann óð langt inn á völlinn til að tala við sína leikmenn og hlustaði ekki á fyrirmæli dómara sem sagði honum að snúa aftur á tæknilega svæðið. „Þetta er algjör skandall" kallaði Jón Páll og benti á fjórða dómarann.
Skömmu síðar jafnaði Alda Ólafsdóttir, sem hafði gert sig hættulega nokkrum sinnum í seinni hálfleiknum, eftir stutta hornspyrnu. Aftur var vörn Víkings gripin sofandi á verðinum.
Bæði lið reyndu að sækja sigurmark í uppbótartíma en tókst ekki. Thea Rhode, sem kom inn af bekknum hjá Víkingum, komst næst því að skora þegar hún skallaði í slána úr algjöru dauðafæri. Víkingar vildu þá fá vítaspyrnu en ekkert dæmt og fékk Mikael Uni Karlsson Brune, styrktarþjálfari Víkings, beint rautt spjald þegar hann missti stjórn á skapi sínu.
Mikael kastaði stól inn á völlinn og fékk beint rautt spjald og lét Einar Guðnason þjálfari einnig í sér heyra útaf vítadómnum sem ekki var. Lokatölur 2-2.
Fram er með 23 stig og Víkingur 21 stig. Valur situr í fallsæti og á leik til góða gegn botnliði Þórs/KA á morgun.