Bjartsýnn á að Gylfi spili - „Stórkostlegt að fylgjast með þessu"
,,Gerir bókstaflega allt sem hann getur gert"

Sölvi og Gylfi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var stórkostlegt að fylgjast með þessu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæinn er búinn að sýna það áður fyrr að hann getur spilað á háu leveli og líka núna kominn á þennan aldur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Auðvitað vil ég sjá Gylfa í liðinu, en það er undir Arnari komið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi og Gylfi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi hefur átt frábært tímabil í ár og hefur reynst Víkingum afskaplega vel frá komu sinni fyrir einu og hálfu ári síðan. Hann missti af leiknum gegn Keflavík vegna smávægilegra meiðsla.
„Já, ég er alltaf bjartsýnn, ég er bjartsýnn á að hann geti spilað og ef hann getur ekki spilað þá er ég samt bjartsýnn."
Mikil forréttindi að fá að þjálfa hann og hafa hann í liðinu
Gylfi hefur spilað mikið á þessu tímabili, hann varð 37 ára fyrr í þessum mánuði en það var ekki að sjá í mestu leikjatörn Víkings í sumar þar sem Gylfi lék í öllum leikjum og oftast 90 mínútur.
„Það var stórkostlegt að fylgjast með þessu og inni í þessari törn áttaði sig maður á því hvað það eru mikil forréttindi að hafa hann í liðinu sínu og fá að þjálfa hann. Hann er fyrst og fremst einn af allra bestu leikmönnum okkar Íslendinga frá upphafi. Líka hvað hann gefur frá sér, gefur liðinu inni á vellinum, hann er viðmið (e. reference) fyrir aðra leikmenn að sjá hvernig maður á að bera sig á æfingasvæðinu, utan þess og í leikjum. Hann er alveg ótrúlegur."
„Ég var alltaf að spyrja hann „hvernig ertu? hvernig ertu?". Eftir einhverja átta leiki þá sá ég að hann var ferskur og ég væri ekkert að fara fá annað svar, ég hætti að spyrja því hann var alltaf klár, sama hversu mikið hann spilaði. Hann spilaði nánast 90 mínútur í öllum þessum leikjum. Hann gerir bókstaflega allt sem hann getur gert til að jafna sig á milli leikja, margir klukkutímar á dag sem fara í endurheimt. Hann hugsar rosalega vel um sig. Það eru forréttindi að fá að þjálfa svona leikmann."
„Hann smitar líka út frá sér til annarra, er mikill leiðtogi og það vita allir hvað hann hefur gert á sínum ferli. Það líta margir upp til hans og í gegnum árin höfum við vilja hafa svona týpur í hópnum, leikmenn sem hvetja aðra til að gera hlutina rétt; leikmenn eins og Pablo Matti Villa og fleiri. Þeir miðla til yngri leikmanna sem læra af þeim og sjá hvernig á að haga sér og liðið hagnast á því."
Vill sjá hann í byrjunarliði landsliðsins
Gylfi er í landsliðshópnum fyrir komandi leiki í Þjóðadeildinni. Hann er markahæsti leikmaður í sögu landsliðsins Þú sem stuðningsmaður íslenska landsliðsins, viltu sjá hann í byrjunarliðinu þar?
„Algjörlega. Gæinn er búinn að sýna það áður fyrr að hann getur spilað á háu leveli og líka núna kominn á þennan aldur, hann átti frábæra leiki á móti sterkum andstæðingum í Evrópukeppninni. Hann er klár leikmaður sem er búinn að sjá þetta allt. Auðvitað vil ég sjá Gylfa í liðinu, en það er undir Arnari komið. Það eru líka fleiri góðir miðjumenn sem eru að spila, en klárlega væri ég til í að sjá hann í stærra hlutverki en hann hefur verið," segir Sölvi.

Það var stórkostlegt að fylgjast með þessu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gæinn er búinn að sýna það áður fyrr að hann getur spilað á háu leveli og líka núna kominn á þennan aldur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Auðvitað vil ég sjá Gylfa í liðinu, en það er undir Arnari komið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 23 | +49 | 56 |
| 2 | KR | 23 | +29 | 47 |
| 3 | Fram | 23 | +12 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 23 | +4 | 33 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 23 | -8 | 28 |
