18.09.26 - 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
Elsta byrjunarlið Chelsea í meira en þrjú ár

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Xabi Alonso er búinn að tilkynna byrjunarlið Chelsea sem heimsækir Brentford í spennandi Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Alonso gerir fimm breytingar á liðinu sem gerði óvænt 2-2 jafntefli við nýliða Hull City á heimavelli um síðustu helgi, þar sem nokkrir reynsluboltar koma inn í byrjunarliðið.
Þar má helst nefna Danny Welbeck og Jordan Henderson, sem gerðu góða hluti með Brighton og Brentford á síðustu leiktíð, og hefur meðalaldur byrjunarliðs Chelsea í úrvalsdeildinni ekki verið svona hár í meira en þrjú ár.
Meðalaldur byrjunarliðsins er 27 ár og 349 dagar, en í maí 2023 var meðalaldur byrjunarliðsins 28 ár og 278 dagar.

TENGT EFNI