Fotbolti.net
18.09.26 - 21:04
Ívan Guðjón Baldursson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Gatorade bikar Fótbolta.net: Selfoss hafði betur á Laugardalsvelli

Gatorade bikar Fótbolta.net: Selfoss hafði betur á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Selfoss 3 - 1 Haukar
0-1 Ívan Breki Sigurðsson ('20, sjálfsmark)
1-1 Eysteinn Ernir Sverrisson ('26)
2-1 Frosti Brynjólfsson ('72)
3-1 Viðar Örn Kjartansson ('93)
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 Haukar
Selfoss og Haukar, liðin sem fara upp úr 2. deild eftir gott sumar, mættust í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net í kvöld og byrjuðu Hafnfirðingar mun betur á Laugardalsvelli.

Þeir sköpuðu hættu og náðu forystunni eftir sjálfsmark Ívans Breka Sigurðssonar sem ætlaði að setja lága fyrirgjöf útfyrir endalínu en setti boltann þess í stað í eigið net.

Selfyssingar voru fljótir að svara fyrir sig og gerði Viðar Örn Kjartansson sig líklegan áður en Eysteinn Ernir Sverrisson jafnaði metin með frábæru einstaklingsframtaki af kantinum.

Selfyssingar voru sterkari aðilinn eftir jöfnunarmarkið og fengu færi til að ná forystunni en tókst ekki, svo staðan var 1-1 í leikhlé.

Í síðari hálfleik byrjuðu Haukar af miklum krafti líkt og í þeim fyrri, en tókst ekki að skora. Hafnfirðingar vildu fá vítaspyrnu í tvígang en fengu ekki. Þeir fengu þess í stað mark í bakið eftir langan bolta yfir vörnina. Frosti Brynjólfsson slapp í gegn og náði að skora af miklu harðfylgi til að taka forystuna fyrir Selfoss á meðan þjálfarateymi Hauka var tryllt á hliðarlínunni.

Haukum mistókst að skapa mikla hættu á lokakaflanum. Selfoss varðist vel og innsiglaði Viðar Örn sigurinn með marki í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 3-1. Selfoss vinnur Gatorade bikarinn í ár.
Gatorade bikar Fótbolta.net: Selfoss hafði betur á Laugardalsvelli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.