Guðni Eiríks: Konur eru orðnar ansi þreyttar á ástandinu 2026

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var létt eftir dramatískan 1-0 sigur á Stjörnunni en hafði jafnframt sterk orð um mistök KSÍ gagnvart 2. fl. liði FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var létt eftir dramatískan 1-0 sigur á Stjörnunni en hafði jafnframt sterk orð um mistök KSÍ gagnvart 2. fl. liði FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var að vonum létt eftir 1-0 sigur liðsins gegn Stjörnunni en sigurmarkið frá fyrirliðanum Andreu Rán Snæfeld Hauksdóttur kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.
„Bara þungu fargi af mér og liðinu, létt,“ sagði Guðni eftir leik.
FH hafði skapað sér nokkrar góðar stöður án þess að ná að nýta þær og Guðni viðurkenndi að hann hefði um tíma óttast að markið kæmi einfaldlega ekki.
„Við gerðum nægilega mikið til þess að vinna þennan leik, ekki spurning. Við vorum sjálfum okkar versti óvinur. Komum okkur í allar þessar frábæru stöður en vorum í krummafót fyrir framan markið. Það hefur gerst áður í sumar.“
„Það var ótrúlega sætt að sjá boltann syngja í netinu því á tímabili leið mér eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora. Þetta var svoleiðis tilfinning.“
Guðni var einnig ánægður með að FH héldi hreinu.
„Frábært að koma markinu inn og frábært á hinum enda vallarins að halda hreinu. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast í deildinni, það er það langt síðan.“
Aldís fékk högg í fyrri hálfleik og þurfti að fara af velli í leikhléi en Guðni segir meiðslin ekki alvarleg.
„Hún fékk hné í lærið og svona dead leg eins og það kallast. Hún missti mátt í lærinu og þess vegna tókum við hana út af. Þetta er ekki alvarlegra en það.“
Næsta verkefni FH er stórt en liðið tekur á móti Eintracht Frankfurt í Evrópukeppni.
„Það er bara æðislegt. Við erum svo sannarlega að njóta í ár. Ógeðslega gaman að vera í þessari stöðu, að vera í Evrópu og hafa náð að komast áfram í næstu umferð.“
„Svo mætum við Frankfurt sem er gríðarlega sterkt lið. Ég veit ekki hversu hátt það er rankað í Evrópu en ég held að það sé mjög ofarlega og mögulega besta liðið í þessari Evrópukeppni.“
Guðni sagði Evrópuleikina sérstaklega dýrmæta fyrir ungt lið FH.
„Það er ótrúlega mikilvægt og gleðilegt fyrir svona unga og flotta leikmenn FH að fá þetta tækifæri að spila fyrir klúbbinn sinn í Evrópu.“
Hann rifjaði upp fyrri Evrópuleik liðsins og tengsl sín við leikmennina.
„Fyrir leik sá maður öll þessi andlit sem maður hefur þjálfað í sjöunda flokki og sjötta flokki. Það voru átta leikmenn sem tóku þátt í þessum leik sem eru uppaldir og sem maður var að þjálfa þegar þeir voru varla metri á hæð.“
Í hálfleik voru leikmenn 2. flokks FH verðlaunaðar eftir að mistök urðu til þess að þær fengu ekki bikar afhentan á sínum leik. Guðni sagði málið ekki hafa áhrif inn í hópinn en gagnrýndi mistökin harðlega.
„Engin áhrif inn í hópinn en náttúrulega ömurleg mistök af hálfu KSÍ. Þeir sem þar stjórna og ráða ríkjum eru búnir að biðjast afsökunar.“
„Þetta er ótrúlega leiðinlegt og dæmigert að þetta gerist kvennamegin. Það er kannski það sem fer í marga. Við erum að sjá núna umfjöllun í fréttum í fleiri íþróttagreinum þar sem það er klúður og mistök og það er á kostnað kvenna. Það er bara sorglegt að það sé svoleiðis.“
Guðni lauk svo máli sínu með beittum orðum.
„Það hefði verið betra fyrir KSÍ að gera þessi mistök karlamegin. Það hefði verið einfaldara að takast á við það. Ég held að konur, kynsystur þínar, séu orðnar ansi þreyttar á ástandinu 2026.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
