Fotbolti.net
18.09.26 - 18:32
Sölvi Haraldsson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Haukarnir geta klárað þrennuna: Byrjunin á einhverju stærra

Auglýsing
Haukarnir geta klárað þrennuna: Byrjunin á einhverju stærra
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er stór dagur fyrir okkur Haukara. Fyrst og fremst bara að fara í úrslitaleik á Laugardalsvelli, við skulum segja að það er mjög sjaldgæft sem Haukari. Það er bikar í boði á Laugardalsvelli og tilhlökkunin er mikil.“ sagði Helgi Fannar Sigurðsson, blaðamaður og mikill Haukamaður, á Ölveri fyrir úrslitaleik Hauka og Selfoss á Laugardalsvelli í Fótbolti.net bikarnum.
Lestu um leikinn: Selfoss 1 - 1 Haukar
„Ég veit ekki alveg hvað það eru margir að mæta. Það er búist við svona 1000 manns á leikinn og ég bið bara um það að við verðum í meirihluta.“ sagði Helgi þegar hann var spurður hvort hann vissi hvað við ættum von á mörgum Haukurum í kvöld.

Er þetta draumaúrslitaleikurinn sem við erum að fá í kvöld?

„Þetta eru tvö bestu liðin. En svo gæti einhver sagt að það væri meiri stemning að fá meiri neðri deildarlið í úrslitaleikinn en ef þú ert að pæla í góðum fótbolta og þess háttar eru þetta tvö bestu liðin að mætast hér í dag.“

Haukarnir geta klárað heilögu þrennuna með sigri í kvöld eftir að hafa verið búnir að klára Lengjubikarinn og 2. deildina í sumar.

„Hljóðið í Haukamönnum eftir sumarið er ekkert eðlilega gott. Maður er alltaf stoltur að vera Haukari en maður er farinn að segja það núna aðeins meira út á við. Guðjón Pétur Lýðsson er búinn að gera ótrúlega hluti fyrir þetta félag og maður er orðinn mjög þakklátur. Ég held líka að þetta sé bara byrjunin á einhverju stærra hjá okkur.“ sagði Helgi en viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Byrjunarlið Selfoss

  • 31. Filip Ivan Sabatti (m)
  • 2. Ívan Breki Sigurðsson
  • 4. Einar Breki Sverrisson
  • 5. Dagur Jósefsson
  • 9. Viðar Örn Kjartansson
  • 10. Aron Fannar Birgisson (f)
  • 11. Frosti Brynjólfsson
  • 17. Brynjar Bergsson
  • 19. Eysteinn Ernir Sverrisson
  • 22. Ivan Paponja
  • 24. Guðmundur Stefánsson

Byrjunarlið Haukar

  • 1. Sveinn Óli Guðnason (m)
  • 4. Máni Mar Steinbjörnsson
  • 6. Óliver Steinar Guðmundsson
  • 7. Jón Arnar Barðdal
  • 9. Sigurður Hrannar Þorsteinsson
  • 10. Daði Snær Ingason (f)
  • 11. Jón Gísli Stefánsson
  • 17. Tómas Atli Björgvinsson
  • 18. Einar Karl Ingvarsson
  • 20. Arnar Númi Gíslason
  • 28. Magnús Ingi Halldórsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.