18.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía um helgina - Íslendingaslagur í Feneyjum og toppslagur í Róm

Roma tekur á móti Ítalíumeisturum Inter. Bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir

Mynd: EPA

Albert og félagar heimsækja Þóri Jóhann til Feneyja

Mynd: EPA

Roma tekur á móti Ítalíumeisturum Inter. Bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir

Mynd: EPA
Fimmta umferðin í Seríu A á Ítalíu er spiluð um helgina, en toppliðin Roma og Inter mætast þar í hörkuslag.
Monza og Sassuolo opna umferðina í ítölsku A-deildinni klukkan 18:45 í kvöld.
Stærsti leikur helgarinnar fer hins vegar fram í Róm á morgun þegar Roma tekur á móti ríkjandi meisturum Inter klukkan 16:00. Bæði lið hafa unnið alla leiki sína á tímabilinu og því mikið undir.
Síðar um kvöldið, klukkan 18:45, mætast landsliðsfélagarnir Þórir Jóhann Helgason og Albert Guðmundsson þegar Venezia tekur á móti Lazio. Rómverjar hafa byrjað tímabilið vel með þrjá sigra og eitt jafntefli en Venezia er stigalaust á botninum.
Á sunnudag tekur Fiorentina á móti Napoli í Flórens, Mikael Egill Ellertsson og félagar í Genoa heimsækja Parma og Juventus og Atalanta eigast við í sterkri viðureign.
AC Milan og Lecce loka síðan umferðinni.
Leikir helgarinnar:
Föstudagur:
18:45 Monza - Sassuolo
Laugardagur:
13:00 Bologna - Torino
13:00 Udinese - Cagliari
16:00 Roma - Inter
18:45 Venezia - Lazio
Sunnudagur:
10:30 Fiorentina - Napoli
13:00 Parma - Genoa
13:00 Frosinone - Como
16:00 Juventus - Atalanta
18:45 Milan - Lecce

Serie A - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Inter | 6 | +10 | 16 |
| 2 | Lazio | 6 | +7 | 16 |
| 3 | Roma | 6 | +11 | 14 |
| 4 | Cagliari | 6 | +3 | 13 |
| 5 | Milan | 6 | +6 | 12 |
| 6 | Juventus | 6 | +4 | 11 |
| 7 | Como | 6 | +3 | 11 |
| 8 | Napoli | 6 | +4 | 10 |
| 9 | Frosinone | 6 | +2 | 10 |
| 10 | Sassuolo | 6 | 0 | 8 |
| 11 | Atalanta | 5 | -2 | 6 |
| 12 | Lecce | 6 | -6 | 6 |
| 13 | Bologna | 6 | -2 | 5 |
| 14 | Udinese | 5 | -3 | 4 |
| 15 | Torino | 5 | -3 | 4 |
| 16 | Monza | 6 | -6 | 4 |
| 17 | Genoa | 6 | -6 | 4 |
| 18 | Parma | 6 | -6 | 4 |
| 19 | Fiorentina | 6 | -7 | 4 |
| 20 | Venezia | 5 | -9 | 0 |