Fotbolti.net
18.09.26 - 16:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Kjörið tækifæri til að halda bænum áfram rauðum saman"

Kristófer er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem spilar yfirleitt sem bakvörður með Þór.

Kristófer er 22 ára fjölhæfur leikmaður sem spilar yfirleitt sem bakvörður með Þór.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Leikurinn leggst virkilega vel í mig og liðið í heild. Það er alltaf gaman að spila þessa leiki. Ég býst við hörkuleik, mikilli baráttu og miklum hita eins og á alltaf að vera í þessum leikjum," segir Kristófer Kristjánsson, leikmaður Þórs, fyrir leikinn gegn KA sem verður spilaður á morgun.

Leikurinn fer frá nýja Greifavellinum, heimavelli KA, og hefst klukkan 19:30 annað kvöld.
Gríðarlega mikið undir í bæjarslagnum - „Saman munum við halda okkur í efstu deild"
TENGT EFNI

Gríðarlega mikið undir í bæjarslagnum - „Saman munum við halda okkur í efstu deild"

„Í grunninn þurfum við að vinna okkar einvígi, halda einbeitingu í 90 mínútur plús og spila með hjartanu."

Jafnmikil pressa á liðunum
Hvernig metur þú það fyrir fram, er meiri pressa á öðru hvoru liðinu fyrir leikinn?

„Það er alltaf pressa í svona leikjum og mjög mikið undir, en hún er jöfn á báðum liðum. Þetta snýst um stolt og þrjú mjög mikilvæg stig. Við setjum fyrst og fremst pressu á okkur sjálfa að mæta og sýna okkar rétta andlit."

Ánægður með traustið
Hvernig metur þú tímabilið hjá þér til þessa?

„Ég er klárlega ánægður með að fá traustið, fá góðar mínútur og geta hjálpað liðinu á vellinum. Maður vill alltaf spila sem mest og leggja sitt af mörkum. Það komu smávægileg meiðsli en ég er kominn yfir það og líður vel."

Nýtur sín í bakverðinum
Kristófer er eins og langflestir Þórsarar að spila sitt fyrsta tímabil í efstu deild. Er eitthvað sem hefur komið á óvart?

„Það er kannski ekki eitthvað sem hefur komið mér á óvart en gæðin og hraðinn á leiknum er klárlega meiri."

Kristófer hefur spilað sem bakvörður undanfarin tímabil en spilaði áður framar á vellinum. Hvernig kom það til?

„Þegar Siggi kom á sínum tíma þá vildi hann prófa mig þarna og mér líður mjög vel í stöðunni í dag, tek mikinn þátt bæði í vörn og sókn sem er skemmtilegt."

Virkilega gott afrek hjá bróður hans
Hálfbróðir Kristófers er Óli Hrannar, þjálfari Hamars, og hefur hann náð góðum árangri með lið Hvergerðinga. Á síðasta tímabili hélt liðið sér í 4. deildinni með ótrúlegum lokasprett og í ár fór liðið upp í 3. deild.

„Það hefur verið gaman að fylgjast með honum. Hann tekur við liðinu í erfiðri stöðu í fyrra og þeir bjarga sér frá falli og svo fara þeir upp í ár. Virkilega gott afrek."

Kjörið tækifæri til að halda bænum áfram rauðum
Ertu með einhver skilaboð til stuðningsmanna Þórs fyrir laugardaginn?

„Ég hvet alla Þórsara að mæta, klæðast rauðu og láta vel í sér heyra. Við þurfum á ykkur að halda á morgun og eftir góð úrslit í bæjarslagnum á miðvikudaginn (í handboltanum) er kjörið tækifæri til að halda bænum áfram rauðum saman!" segir Kristófer.
Ég er klárlega ánægður með að fá traustið, fá góðar mínútur og geta hjálpað liðinu á vellinum.

Ég er klárlega ánægður með að fá traustið, fá góðar mínútur og geta hjálpað liðinu á vellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi prófaði Kristófer í bakverðinum og hann hefur spilað þar síðan.

Siggi prófaði Kristófer í bakverðinum og hann hefur spilað þar síðan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óli Hrannar er hálfbróðir Kristófers.

Óli Hrannar er hálfbróðir Kristófers.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ég hvet alla Þórsara að mæta, klæðast rauðu og láta vel í sér heyra

Ég hvet alla Þórsara að mæta, klæðast rauðu og láta vel í sér heyra

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Stjarnan23-631
2Valur23-330
3FH23-924
4Þór23-3121
5KA23-1620
6ÍBV23-1518
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.