Fotbolti.net
18.09.26 - 07:30
Elvar Geir Magnússon

Kroupi undir smásjá Arsenal - Chelsea horfir til Williams

Kroupi er feikilega spennandi leikmaður.

Kroupi er feikilega spennandi leikmaður.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Framundan er síðasta helgin fyrir þriggja vikna landsleikjaglugga. Það er því mjög mikilvægt að njóta! Hér er slúðurpakkinn á föstudegi.
Arsenal hefur mikinn áhuga á að fá sóknarmanninn Eli Junior Kroupi (20) frá Bournemouth. Ljóst er að Bournemouth myndi krefjast hárrar upphæðar fyrir franska U21-landsliðsmanninn. (Football London)

Real Madrid íhugar að reyna að fá enska varnarmanninn Jarrad Branthwaite (24) frá Everton en hann er einnig í sigtinu hjá nokkrum félögum í ensku úrvalsdeildinni. (Goal)

Chelsea kannar möguleikann á 69 milljóna punda kaupum á spænska kantmanninum Nico Williams (24) frá Athletic Bilbao. (Fichajes)

Arsenal hefur engan hug á að selja spænska miðjumanninn Martin Zubimendi (27) í janúar. (Football Insider)

Real Madrid og Barcelona hafa sent nýjar fyrirspurnir varðandi bandaríska unglinginn Cavan Sullivan (16) en hann er á leiðinni til Manchester City frá Philadelphia Union þegar hann verður 18 ára. (Teamtalk)

Liverpool þarf að greiða 130 milljóna riftunarákvæði að fullu til að kaupa brasilíska leikmanninn Rayan (20) frá Bournemouth. Andoni Iraola stjóri Liverpool þekkir miðjumanninn frá tíma sínum hjá Bournemouth. (ESPN Brasilíu)

Argentínumaðurinn Julian Alvarez (26) hjá Atletico Madrid íhugar að skipta um umboðsmann. Arsenal og Barcelona reyndu mikið að fá hann í sumar en án árangurs. (Mundo Deportivo)

Ólíklegt þykir að Everton reyni að fá sóknarmanninn Richarlison (29) frá Tottenham þrátt fyrir að orðrómur hafi verið á kreiki í sumar um að Brasilíumaðurinn gæti snúið aftur til félagsins. (Football Insider)
Nico Williams.

Nico Williams.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.