18.09.26 - 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Orðar Bjart Bjarma við félög í Bestu deildinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjartur Bjarmi Barkarson er lykilmaður í liði Aftureldingar sem vann Lengjudeildina í sumar. Afturelding verður því aftur í Bestu deildinni á komandi tímabili.
Hann er 24 ára miðjumaður sem var eftirsóttur síðasta vetur og reyndi Njarðvík að kaupa hann, en án árangurs. Hann var einnig orðaður við ÍA, FH og Þór.
Hjörvar Hafliðason orðaði hann við félög í Bestu deildinni í Dr. Football þætti gærdagsins og eru Valur og Breiðablik sögð hafa augastað á honum núna.

Bjartur Bjarmi er samningsbundinn Aftureldingu út næsta tímabil. Hann spilaði í öllum leikjum liðsins í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum þar sem Afturelding fór alla leið í úrslit.