Fotbolti.net
18.09.26 - 19:36
Snæbjört Pálsdóttir

Óskar Smári: Við ætlum að koma og taka yfir á næstu árum

Auglýsing
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var stoltur af frammistöðu ungs liðs síns þrátt fyrir sárt 0-1 tap gegn FH.

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var stoltur af frammistöðu ungs liðs síns þrátt fyrir sárt 0-1 tap gegn FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var afar svekktur eftir 0-1 tap liðsins gegn FH en sigurmark heimakvenna kom á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Stjarnan

„Bara sársvekktur fyrir leikmannahópinn minn og liðið mitt því mér fannst við sannarlega ekki eiga þetta skilið í dag,“ sagði Óskar eftir leik.

„Þær náðu að troða þessu yfir línuna og þurftu að hafa mikið fyrir því. Miðað við hvernig leikurinn spilaðist og gang leiksins þá finnst mér þetta ógeðslega ósanngjarnt. Það er auðvitað bara mín skoðun.“


Stjarnan breytti upplegginu fyrir leikinn og Óskar sagði liðið hafa farið út í ákveðna tilraunastarfsemi.

„Við breyttum um kerfi og fórum að setja leikinn upp tíu á móti tíu. Stelpurnar gáfu mér samþykki fyrir því að fara í tilraunastarfsemi í einhverjum hluta af úrslitakeppninni og ég gerði það í dag.“

„Til að byrja með vorum við aðeins hægar í þessu, sérstaklega með boltann, en svo byggðist hægt og rólega upp gott momentum hjá okkur. FH er gott lið og getur pinnað þig niður en þegar þær gerðu það þá leystum við það vel.“

Óskar var sérstaklega ánægður með frammistöðuna í síðari hálfleik.

„Mér fannst varnarleikurinn góður og seinni hálfleikurinn með boltann frábær. Mér fannst við bara vera rændar í dag.“


Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Stjarnan fékk á sig mark undir lokin en Óskar sagði þennan leik þó auðveldari að sætta sig við en þá tvo á undan.

„Þetta er þriðji leikurinn í röð sem við fáum á okkur mark á 90. mínútu en ég get miklu meira lifað með þessu í dag heldur en síðustu tvo.“

„Ég er bara stoltur af stelpunum. Mér fannst þær leggja ógeðslega mikið á sig, berjast hver fyrir aðra og vinnuframlagið var mikið. Margir ungir leikmenn voru að spila og þetta unga Stjörnulið var bara frábært.“


Óskar segir framtíðina bjarta í Garðabæ og hrósaði sérstaklega starfi yngri flokka félagsins.

„Þetta er afrakstur góðrar stefnu í yngri flokkum undanfarin ár, góðra þjálfara og efnilegra leikmanna sem leggja mikið á sig.“

„Rósa lenti hérna bara fyrir korteri síðan frá U17-verkefni og mér fannst hún algjörlega frábær í þeim mínútum sem hún spilaði í dag.“

„Ég ætlaði helst að reyna að spila hana ekki. Hún spilaði alltof mikið en hún var frábær og ég var ógeðslega stoltur af henni.“


Hann nefndi einnig Eydísi, sem fékk sínar fyrstu mínútur, og fleiri unga leikmenn sem eru að banka á dyrnar.

„Eydís kemur inn á og spilar sínar fyrstu mínútur í dag. Við eigum bara fullt af þessum stelpum.“

„Við erum bara með ógeðslega efnilegar stelpur sem við horfum til í framtíðinni og teljum að framtíðin sé mjög björt í Garðabæ.“


Fanney Lísa var á dögunum seld frá Stjörnunni til Molde FK í Noregi og telur Óskar hana vera brautryðjanda fyrir aðra unga leikmenn. 

„Hún er bara brautryðjandi þess að við viljum selja fleiri, við viljum stækka púlið fyrir stelpurnar og gefa þeim meira platform.“

„Þær eiga það sameiginlegt að þær eru hungraðar og vilja ná árangri. Þær vita líka að þetta er ekki gefins.“

„FH er mjög ungt og efnilegt lið en við ætlum að koma og taka yfir á næstu árum. Þetta er það sem við eigum til staðar í Stjörnunni og við ætlum að ná að þróa það áfram.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.