Fotbolti.net
18.09.26 - 19:11
Snæbjört Pálsdóttir

„Takið alla ættingja og vini“ – Hetja FH vill troðfulla stúku gegn Frankfurt

Auglýsing
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var hetja FH þegar hún skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni á 90. mínútu.

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir var hetja FH þegar hún skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni á 90. mínútu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir, fyrirliði FH, tryggði sínu liði dramatískan 1-0 sigur gegn Stjörnunni þegar hún skoraði sigurmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma.

Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Stjarnan

„Bara svona léttir einhvern veginn, mikill léttir,“ sagði Andrea Rán eftir leik.

FH hafði lengi átt í erfiðleikum með að brjóta niður þétta vörn Stjörnunnar en Andrea sagði trúna aldrei hafa vantað.

„Miðað við stöðuna þá var svolítið erfitt að brjóta þessa Stjörnuvörn niður. Það er samt alltaf trú í FH-liðinu að við séum að fara að skora. Mér fannst við eiga margar góðar sóknir þannig að mér fannst einhvern veginn bara tímaspursmál hvenær þetta myndi detta í markið hjá þeim. Það var alltaf að fara að koma.“

Með sigrinum heldur FH áfram að elta Breiðablik í toppbaráttunni en Andrea segir liðið ekki vera að horfa of langt fram í tímann.

„Ég tala eiginlega bara fyrir mig og liðið en við hugsum alltaf bara um næsta leik og næstu þrjú stig. Sama hver er fyrir framan þig, þá er maður að fara að ná í þessi þrjú stig. Ég held að mesti fókusinn sé bara næsti leikur.“

Næsti leikur FH er af allt öðrum toga en liðið tekur á móti þýska stórliðinu Eintracht Frankfurt í Evrópukeppni á miðvikudaginn.

„Það er bara geggjuð stemning að fá að spila á móti svona stóru liði eins og Frankfurt og líka sérstaklega að byrja hérna heima. Ég held að það væri bara geggjað að fá fólk í stúkuna og fá brjáluð læti.“

Andrea hvatti stuðningsmenn FH til að fjölmenna á leikinn.

„Bara peppa alla til að koma og taka alla ættingja og vini. Ég held að þetta verði bara hörkuleikur og það er geggjað að sjá okkur spila á móti Frankfurt.“

FH-liðið er ungt og Andrea ein af þeim reyndari í hópnum. Hún segir gríðarlega mikið búa í yngri leikmönnum liðsins.

„Það býr mikið í þeim og ég segi alltaf við þær að það séu alltaf fimm prósent sem þær geta gefið meira. Það er bara gaman að spila með þessum stelpum.“

„Það er margt að læra og það býr ógeðslega mikið í þeim. Eins og þær sýna á vellinum þá eiga þær fullt inni og þær eru geggjaðar.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.