18.09.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon
Tekur þátt í þessum leik þriðja árið í röð - „Bara annar dagur á skrifstofunni“

Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann kom aftur í uppeldisfélagið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári í leik með Keflavík gegn Fylki á síðasta ári.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ansi merkilegt að Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, er þriðja árið í röð að fara að spila úrslitaleik Lengjudeildarumspilsins.
„Þetta er 'Just another day at the office' hjá mér, það er bara geggjað. Fínt að venjast því að spila hér," segir Kári við útvarpsþáttinn Fótbolti.net.
Hann skoraði í stórsigri Keflavíkur gegn Fylkis í úrslitaleiknum fyrir ári síðan en var í tapliði með Keflavík gegn Aftureldingu árið þar á undan. Hann er kokhraustur fyrir viðureignina gegn Þrótti á morgun.
„Ég held að þetta verði drulluopinn og skemmtilegur leikur. Liðið sem skorar fyrst vinnur ekkert endilega leikinn."

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
Með stjórnartaumana hjá Fylki er Heimir Guðjónsson sem er þaulvanur því að fara í stóra leiki sem þennan.
„Hann er með orku sigurvegarans og kemur með hana inn í klefann á hverjum degi. Með honum hef ég engar áhyggjur af þessu," segir Kári.
Þrátt fyrir að hafa hjálpað Keflavík að komast í Bestu deildina í fyrra þá kölluðu heimahagarnir á hann og hann fór í uppeldisfélagið þó það væri deild neðar.
„Ég vildi fara heim, spila í bænum. Það kitlaði mig að fara heim, sérstaklega eftir að Heimir Guðjóns var ráðinn. Til lengri tíma litið taldi ég að það væri gott fyrir mig að fara í Fylki. Það er ekkert eðlilega gaman að vera með vini og fjölskyldu á vellinum."
Viðtalið við Kára er í heild sinni í útvarpsþættinum sem er kominn á allar hlaðvarpsveitur og einnig í spilaranum hér að neðan. Þar er hitað upp fyrir 100 milljóna króna leik Þróttar og Fylkis.