18.09.26 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Þróttur hefur hreinsað af sér brandarastimpilinn

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Munu Þróttarar fagna í Laugardalnum á morgun?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það ræðst á morgun laugardag hvort það verði Þróttur eða Fylkir sem kemst upp í Bestu deildina en þá verður úrslitaleikur umspilsins á Laugardalsvelli.
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, spjallaði við útvarpsþáttinn Fótbolti.net á fréttamannafundi fyrir 100 milljóna króna leikinn eins og við fjölmiðlar kjósum að kalla viðburðinn.
„Þetta 100 milljóna dæmi er alls ekki gulrótin mín, það er bara að koma þessu liði upp um deild. Maður fær vatn í munninn við að horfa á völlinn. Við fengum að fara inn á hann í gær og hann er rennisléttur og fallegur. Ég er fullur tilhlökkunar og heilbrigðrar spennu," segir Sigurvin.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu
Það eru tíu ár síðan Þróttur var í efstu deild, þegar Sigurvin tók við liðinu var stefnt á þá vegferð að koma liðinu upp í Bestu deildina.
„Sama hvað þú gerir í lífinu, þú reynir að gera betur í dag en í gær. Það hefur verið vöxtur í okkar liði síðustu árin. Það er tækifæri á laugardaginn að komast í deild þeirra bestu og þá er markmiðinu náð."
Eru líkindi með þessum tveimur liðum sem eru að fara að mætast, Þrótti og Fylki?
„Kannski ekki endilega alveg eins taktískt, við spilum aðeins öðruvísi. Liðin eru lík að því leyti til að það eru góðir leikmenn í öllum stöðum. Það er seigla í báðum þessum liðum. Fylkir hefur þá sögu að hafa verið í efstu deild áður."
Það hefur oft verið mikil stemning í kringum Þrótt í kringum tíðina og stundum eins og að ná árangri sé aukaatriði. En eitt af því sem Sigurvin hefur unnið að er auka fagmennsku og að fólk taki félaginu alvarlega.
„Mér finnst Þróttur komið á þennan stað þó það hafi oft verið talað um Þrótt sem brandaralið í gegnum tíðina. Andinn er orðinn þannig að okkur finnst við eiga heima í efstu deild. Það er ekkert að því að hafa grín og hafa húmor, það er bara gott, en það má ekki vera aðalatriðið. Fagmennska og gæði þurfa að vera aðalmálið. Við og kvennaliðið höfum staðið okkur vel á undanförnum árum og yngri flokka starfið er frábært. Það er allt til staðar til að Þróttur sé eitt af stóru liðunum á Íslandi."
Viðtalið við Venna er í heild sinni í útvarpsþættinum sem er kominn á allar hlaðvarpsveitur og einnig í spilaranum hér að neðan. Þar er hitað upp fyrir 100 milljóna króna leik Þróttar og Fylkis.