Fotbolti.net
18.09.26 - 21:32
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Tvö rauð spjöld á þjálfarateymi Víkings: Hann fékk sínar fimmtán sekúndur þessi fjórði dómari

Auglýsing
Einar svekktur eftir leikinn.

Einar svekktur eftir leikinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Ég er mjög svekktur, því að við áttum skilið að fá fleiri stig úr þessum leik" sagði Einar Guðnason, þjálfari Víkings, eftir 2–2 jafntefli gegn Fram í 1. umferð neðri hluta Bestu deildarinnar.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 Víkingur R.

„Við sköpum fleiri færi, Framarar sköpuðu sér ekki mikið af færum en þær nýttu það vel. Það er svekkjandi hvernig þær þurftu að hafa lítið fyrir því að skora þessi mörk. Það er líka svekkjandi hvað við skildum ekki hafa nýtt færin okkar betur og að ná ekki að halda í þessa forystu í lokin."

Hvað gerist eftir seinna mark Víkings?

„Það verður einhver farsi hérna sem fjórði dómarinn ber alla ábyrgð á, því að hann bjó þetta til. En auðvitað á kannski Jón Páll (Aðstoðarþjálfari Víkinga) að setjast niður, en hann var að reyna að koma skilaboðum til leikmanna okkar og ég veit ekki af hverju hann mátti það ekki. En hann fékk sínar fimmtán sekúndur þessi fjórði dómari, ég veit ekki en kannski snýst mómentum með því. Þetta er hornspyrna sem þær skora úr, við vorum búin að skoða þetta og áttum að geta varist betur."

Hvaða útskýringu gaf dómarinn á rauða spjaldinu eftir leikinn?

„Ekki neina."

„Hann náði ekkert að útskýra það, fjórði dómarinn. Svo fær Mikki (Styrktarþjálfari Víkinga), hann sparkar í stól þegar honum fannst við eiga að fá víti og það stendur í reglunum að það sé bannað, við getum ekkert sagt við því."

Átti Víkingur að fá víti í lokin?

„Mér fannst það, en ég veit það ekki. Hún markmaðurinn tekur Theu (Rhode) niður. En fjórði dómarinn sagði að hún hefði komist í boltann á undan. Mér fannst hún taka Thea niður fyrst og svo boltann, en þetta er svona. Kannski sjáum við það í sjónvarpinu."

Af hverju fékkstu gult spjald eftir að leiknum lauk?

„Ég fékk gult spjald fyrir það að ég var að reyna að fá útskýringu á þessum spjöldum og ég var mjög kurteis, en ég veit ekki. Þau þurftu að gefa fleiri spjöld."

Einar gerði bara tvær skiptingar í leiknum, var hann ánægður með liðið sitt í dag?

„Já, mér fannst það að næsta mark liggi í loftinu. Ég vildi ekki taka mómentumið sem kom og Jasmín var gjörsamlega búin á því, búin að vera svolítið frá. Hún þurfti að koma út af og við settum Theu inn á eftir það."

Einar var ekki sáttur með Milan Djurovic, fjórða dómarann í dag.

Einar var ekki sáttur með Milan Djurovic, fjórða dómarann í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.