Fotbolti.net
18.09.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Valdi Ronaldo í sinn fyrsta hóp

Jorge Jesus tilkynnir hópinn.

Jorge Jesus tilkynnir hópinn.

Canon

Mynd: EPA

Jorge Jesus, nýr landsliðsþjálfari Portúgals, hefur valið Cristiano Ronaldo í sinn fyrsta landsliðshóp, fyrir komandi leiki liðsins í Þjóðadeildinni.
Ronaldo, 41 árs, sagði að HM í sumar væri hans síðasta heimsmeistaramót en framherjinn hefur enn ekki gefið upp hvenær hann hyggst hætta að spila með landsliðinu. Hann verður 43 ára þegar Evrópumótið 2028, næsta stórmót, fer fram.

Jesus var ráðinn í stað Spánverjans Roberto Martinez eftir að Portúgal tapaði 1-0 fyrir Spáni í 16-liða úrslitum HM. Jesus var þjálfari Ronaldo hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu þar sem þeir unnu deildina saman síðasta tímabil.

„Ef hann stendur sig vel, þá spilar hann. Ef hann stendur sig ekki vel, þá spilar hann ekki. Þannig kem ég fram við alla," segir Jesus. „Hefur Cris nú aðra stöðu? Já. Ferill hans er öðruvísi. Hann hefur fimm Ballon d'Or gullbolta. En hefur það áhrif á ákvarðanir mínar? Nei. Það hefur engin áhrif, núll, en hann er öðruvísi en hinir.“

Portúgalski hópurinn

Markverðir: Diogo Costa (Porto), Rui Silva (Sporting), Samuel Soares (Benfica)

Varnarmenn: Gonçalo Inácio (Sporting), João Cancelo (Barcelona), Diogo Dalot (Manchester United), Nuno Tavares (Lazio), Nuno Mendes (Paris Saint-Germain), Renato Veiga (Villarreal), Rúben Dias (Manchester City), Tomás Araújo (Benfica)

Miðjumenn: Bruno Fernandes (Manchester United), João Palhinha (Benfica), João Neves (Paris Saint-Germain), Rúben Neves (Al Hilal), Vitinha (Paris Saint-Germain), Bernardo Silva (Real Madrid)

Sóknarmenn: Cristiano Ronaldo (Al Nassr), Fábio Silva (Borussia Dortmund), Francisco Trincão (Al Ahli), Francisco Conceição (Juventus), Gonçalo Ramos (AC Milan), João Félix (Al Nassr), Pedro Neto (Chelsea), Rafael Leão (Galatasaray)
Valdi Ronaldo í sinn fyrsta hóp
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.