Leicester City tók á móti nýliðum Aston Villa í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Úr varð afar daufur leikur sem hélst markalaus þar til Ross Barkley skoraði í uppbótartíma og tryggði fjórða sigur Aston Villa í röð. Liðið er með tólf stig eftir fjórar fyrstu umferðir tímabilsins.
Jack Grealish var maður leiksins og fékk hann 8 í einkunn hjá Sky Sports. Barkley fékk sömu einkunn en aðrir leikmenn fengu ýmist 6 eða 7 fyrir sinn þátt.
Úrslitin eru slæm fyrir Leicester sem er óvænt búið að tapa tveimur í röð eftir að hafa byrjað tímabilið á þremur sigrum.
Leicester: Schmeichel (6), Castagne (6), Fofana (7), Evans (6), Justin (6), Mendy (7), Tielemans (7), Barnes (7), Praet (6), Perez (6), Iheanacho (6).
Varamenn: Maddison (6), Slimani (5), Choudhury (5).
Aston Villa: Martinez (7), Cash (6), Konsa (7), Mings (7), Targett (7), Luiz (6), McGinn (6), Barkley (8), Grealish (8), Trezeguet (7), Watkins (6).
Varamenn: Traore (6).
Athugasemdir