Fotbolti.net
18.10.26 - 13:37
Brynjar Ingi Erluson

Bergvall og Savio frá í nokkrar vikur

Bergvall og Savio frá í nokkrar vikur
Canon

Mynd: EPA

Lucas Bergvall og Savio, leikmenn Tottenham, verða frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla.
Tottenham keypti Savio frá Manchester City í sumarglugganum og hefur hann verið í byrjunarliðinu í fjórum leikjum á tímabilinu.

Hann verður hins vegar ekki með Tottenham gegn Coventry á morgun, en Roberto De Zerbi, stjóri félagsins, staðfesti að hann hefði orðið fyrir vöðvameiðslum í vikunni, rétt áður en liðið hélt í æfingaferð til Marbella.

Sænski miðjumaðurinn Lucas Bergvall er einnig á meiðslalistanum eftir að hafa fundið fyrir verkjum í hné í 1-1 jafnteflinu gegn Manchester United. Hann náði þó að klára leikinn en þarf nú að taka sér hvíld frá keppni.

„Savio fann fyrir verkjum í vöðva á þriðjudaginn, rétt áður en við héldum til Marbella. Hann verður frá í nokkrar vikur.“

„Lucas fann til í hnénu strax í byrjun leiksins gegn Manchester United þegar hann skapaði fyrsta færið okkar fyrir Solanke. Hann náði að klára leikinn en þurfti að fara í meðhöndlun hjá læknateyminu daginn eftir. Ég reikna með að hann verði frá í um tvær vikur,“
sagði De Zerbi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.