Fotbolti.net
18.10.26 - 13:01
Brynjar Ingi Erluson

Besta deild kvenna: Þróttur valtaði yfir FH - Breiðablik getur orðið meistari á morgun

Þróttur skoraði fjögur gegn FH

Þróttur skoraði fjögur gegn FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH 0 - 4 Þróttur R.
0-1 Sæunn Björnsdóttir ('19 , víti)
0-2 Sierra Marie Lelii ('36 )
0-3 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('90 )
0-4 Kayla Marie Rollins ('93 )
Lestu um leikinn
Breiðablik getur varið Íslandsmeistaratitilinn á morgun eftir að FH tapaði 4-0 fyrir Þrótti í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í Kaplakrika í dag.

FH-ingar vissu að þær þyrftu á sigri að halda til að tryggja að úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn færi fram gegn Blikum í lokaumferðinni, en sú varð ekki raunin.

Umdeilt atvik átti sér stað á 19. mínútu þegar Thelma Lóa Hermannsdóttir fór í Róseyju Björgvinsdóttur og dómarinn benti á vítapunktinn. Thelma virtist ná til boltans fyrst og FH-ingar mótmæltu harðlega, ekki síst þar sem þær töldu að brotið hefði átt sér stað utan vítateigs.

Dómarinn stóð hins vegar fastur á sínu og Sæunn Björnsdóttir steig á punktinn og kom Þrótti yfir.

FH-ingar sóttu í sig veðrið eftir markið og fóru að banka á dyrnar í leit að jöfnunarmarki, en fengu þess í stað annað mark í andlitið. Björg Gunnlaugsdóttir komst upp að endamörkum og sendi boltann fyrir á Sierru Marie Lelii sem sneri Jónínu Linnet af sér og skoraði.

Þróttarar leiddu því 2-0 í hálfleik og héldu vel utan um forskotið í þeim síðari. FH reyndi að koma sér aftur inn í leikinn, en náði ekki að skapa sér nægilega góð færi til að ógna forystu gestanna að ráði.

Undir lokin gerðu Þróttarar svo endanlega út um leikinn. Kayla Rollins missti boltann frá sér rétt utan vítateigs og hann barst til Bríetar Fjólu sem færði hann yfir á hægri fótinn og skoraði með föstu skoti í fjærhornið.

Skömmu síðar kom fjórða markið. Katie Cousins átti frábæra sendingu inn fyrir vörn FH á Kaylu sem stakk Jónínu af, lék á Aldísi Guðlaugsdóttur í markinu og renndi boltanum í autt netið.

Þróttarar nýttu færin sín vel og fögnuðu sannfærandi 4-0 sigri sem hefur heldur betur áhrif á toppbaráttuna.

Úrslitin þýða að Breiðablik þarf aðeins eitt stig gegn Stjörnunni á morgun til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Tapi Blikar hins vegar verður hreinn úrslitaleikur um titilinn gegn FH í lokaumferðinni.

Þróttur situr í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig.
FH þarf að treysta á að Blikar tapi gegn Stjörnunni á morgun

FH þarf að treysta á að Blikar tapi gegn Stjörnunni á morgun

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Besta kvenna - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Breiðablik21+3046
2FH21+2943
3ÍBV22-930
4Grindavík/Njarðvík22-929
5Stjarnan21-127
6Þróttur R.21-126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.