Fotbolti.net
18.10.26 - 11:23
Brynjar Ingi Erluson

Carrick segir markmiðið vera að vinna úrvalsdeildina

Michael Carrick

Michael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, segir að markmiðið sé alltaf að berjast um enska úrvalsdeildartitilinn og félagið ætli sér að komast aftur í þá stöðu.
Manchester United hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina síðan Sir Alex Ferguson stýrði liðinu til sigurs á sínu síðasta tímabili fyrir tólf árum.

United hefur nokkrum sinnum blandað sér í titilbaráttuna síðan þá, en ekki tekist að fara alla leið.

Liðið hefur sætt töluverðri gagnrýni fyrir frammistöðuna á þessu tímabili, en Carrick telur enga ástæðu til að örvænta og bendir á að staðan sé ekki eins slæm og margir vilja meina.

„Það er mikilvægt að setja hlutina í samhengi því hlutirnir breytast hratt í fótbolta. Við höfum gengið í gegnum tímabil þar sem sigrarnir hafa látið á sér standa, en leiðréttið mig ef ég fer með rangt mál, erum við ekki bara fjórum stigum frá fjórða sætinu?“

„Að vinna ensku úrvalsdeildina væri auðvitað risastórt skref, en það er markmiðið okkar og við höldum áfram að vinna að því að komast þangað.“

„Við erum svo sannarlega enn í baráttunni um efstu sætin í ensku úrvalsdeildinni. Úrslitin hafa ekki verið okkur hagstæð og fólk einblínir því á það neikvæða. Það er undir okkur komið að snúa þessari þróun við, en efstu sætin eru svo sannarlega enn innan seilingar,“
sagði Carrick.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Everton7+110
8Leeds6+39
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Crystal Palace6-37
14Man Utd606
15Coventry6-66
16Fulham7-35
17Nott. Forest6-35
18Sunderland6-64
19Bournemouth6-63
20Tottenham6-63
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.