18.10.26 - 10:59
Brynjar Ingi Erluson
Chelsea og Liverpool berjast um Scott

Alex Scott

Mynd: EPA

Alex Scott

Mynd: EPA
Chelsea og Liverpool munu berjast um að fá Alex Scott, miðjumann Bournemouth, til liðs við sig en frá þessu greinir Fabrizio Romano á X.
Bournemouth hafnaði öllum tilboðum Chelsea í Scott í sumar, en nú virðast dyrnar vera að opnast fyrir möguleg félagaskipti.
Samkvæmt Romano er Bournemouth tilbúið að selja hann í janúarglugganum, en aðeins ef tilboð upp á 100 milljónir punda eða meira berst.
Chelsea er sagt standa best að vígi í baráttunni um Scott, en Liverpool hefur einnig mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig.
Scott er 23 ára gamall og hefur verið í frábæru formi með Bournemouth í upphafi tímabilsins. Frammistaða hans hefur heldur betur vakið athygli og í síðasta mánuði lék hann sinn fyrsta A-landsleik fyrir England.
Romano telur nánast öruggt að Scott yfirgefi Bournemouth á næsta ári, en hvort það gerist strax í janúar eða næsta sumar á eftir að koma í ljós.