18.10.26 - 14:13
Brynjar Ingi Erluson
Conte hefur ekki samþykkt að taka við af Carrick

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalski þjálfarinn Antonio Conte er reiðubúinn að snúa aftur í þjálfun en þetta segir Fabrizio Romano.
Conte hætti hjá Napoli í sumar og hefur síðan þá gefið sér tíma til að íhuga næstu skref á þjálfaraferlinum.
Á dögunum var greint frá því að hann hefði samþykkt að taka við Manchester United ef félagið myndi ákveða að reka Michael Carrick eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Romano segir hins vegar ekkert hæft í þeim fregnum. Conte sé vissulega tilbúinn að taka við liði á miðju tímabili, en ekkert samkomulag sé í höfn við Man Utd né önnur félög. Þá hafi hann þegar hafnað tilboðum frá Sádi-Arabíu.
Conte er með glæsilega ferilskrá og hefur unnið fjölda titla á þjálfaraferlinum. Hann gerði Napoli að Ítalíumeisturum árið 2025, en hafði áður unnið deildina með Inter árið 2021 og þrisvar í röð með Juventus á árunum 2012 til 2014.
Hann stýrði einnig Chelsea til sigurs í ensku úrvalsdeildinni og enska bikarnum á þeim tveimur árum sem hann var við stjórnvölinn hjá félaginu.