18.10.26 - 12:05
Brynjar Ingi Erluson
Fyrsta tap Barcelona í tæpt ár

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Spænska stórliðið Barcelona beið sinn fyrsta ósigur í tæpt ár þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Real Sociedad í spænsku kvennadeildinni í dag.
Barcelona hefur verið langbesta lið Spánar undanfarin ár og yfirburðir liðsins verið slíkir að ekkert annað lið hefur komist með tærnar þar sem Börsungar eru með hælana.
Það kemur þó fyrir að Barcelona tapi leikjum, þótt það sé afar sjaldgæft. Liðið tapaði aðeins einum leik í öllum keppnum á síðasta tímabili, 1-0 gegn Real Sociedad í deildinni í nóvember, og í dag endurtók sagan sig.
Sociedad gerði sér nefnilega lítið fyrir og vann 2-1 sigur á Barcelona og er þar með eina liðið sem hefur tekist að leggja Börsunga að velli á síðustu tveimur tímabilum.
Patri Guijarro kom Barcelona yfir áður en mínúta var liðin af leiknum og allt virtist stefna í enn einn sigur Börsunga. Sociedad var hins vegar á öðru máli, sneri taflinu við fyrir hálfleik og hélt forystunni allt til leiksloka.
Þrátt fyrir þetta óvænta tap er Barcelona áfram á toppi deildarinnar með 18 stig eftir sjö umferðir, en Sociedad situr í tíunda sæti með átta stig.

Since the start of last season Barcelona has lost just two games across all competitions and both have been against Real Sociedad.
— Yash (@Odriozolite) October 18, 2026
Real Sociedad have beaten them twice in their last three encounters.