18.10.26 - 14:32
Brynjar Ingi Erluson
Góður útisigur hjá lærisveinum Freysa

Lærisveinar Freysa unnu níunda sigurinn undir hans stjórn

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í norska stórliðinu Rosenborg unnu sannfærandi 3-0 útisigur á Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Gengi Rosenborgar hefur heldur betur snúist við síðan Freyr tók við liðinu um mitt sumar.
Þegar hann tók við var árangurinn slíkur að Evrópusæti fyrir næstu leiktíð virtist fjarlægur draumur, en undir stjórn Freys hefur Rosenborg klifrað upp töfluna og er nú komið í harða baráttu um sæti í Evrópukeppni.
Í dag vann liðið sinn níunda deildarsigur undir stjórn Freys og komst þar með upp að hlið Molde sem situr í Evrópusæti. Rosenborg er í fimmta sæti með 37 stig, jafn mörg og Molde, þegar sjö umferðir eru eftir af tímabilinu.
Dagskráin sem bíður Rosenborgar gæti reynst liðinu hagstæð því af þeim sjö andstæðingum sem eftir eru situr aðeins eitt lið fyrir ofan það í töflunni, Molde. Hinir sex leikirnir eru allir gegn liðum sem eru í áttunda sæti eða neðar.
Það eru því spennandi vikur fram undan hjá Rosenborg og Frey sem eiga raunhæfan möguleika á að tryggja sér Evrópusæti eftir mikinn viðsnúning á tímabilinu.
Í norsku B-deildinni komu Hinrik Harðarson og Breki Baxter inn af bekknum hjá Egersund sem gerði 3-3 jafntefli við Sogndal. Atli Barkarson var hins vegar ekki í leikmannahópi Sogndal.
Egersund situr í áttunda sæti deildarinnar með 34 stig, fimm stigum frá umspilssæti, en Sogndal er í 14. sæti með 24 stig.