Fotbolti.net
18.10.26 - 14:09
Andri Stefánsson

Guðni um vítaspyrnudóminn: Þetta var aldrei víti

Auglýsing
Guðni var svekktur eftir leik.

Guðni var svekktur eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
„Virkilega svekkjandi fyrir okkur. Það eru allir svekktir í klefanum akkúrat núna. Mikil vonbrigði að fá núll stig og gera vonir okkar um að fá eitthvað út úr þessu tímabili að engu,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 4-0 tap gegn Þrótti.
Lestu um leikinn: FH 0 - 4 Þróttur R.
Hvað var leikplanið fyrir leikinn?

„Leikplanið var bara að spila okkar fótbolta og leita í þau svæði sem við vissum að yrðu opin hjá Þrótti. Þetta snýst bara um að vera klínískari fyrir framan markið. Við gerðum það ekki í dag og nýttum ekki þær stöður sem við komum okkur í.“

Aldrei nokkurn tímann víti
Guðni var afar ósáttur við vítaspyrnuna sem Þróttur fékk í leiknum.

„Bara aldrei víti. Aldrei nokkurn tímann víti. Þetta var ekki að hjálpa okkur. Það á ekki að vera ástæðan fyrir því að við töpum leiknum en það er óþolandi að þurfa að díla við þetta líka.“

Hann gagnrýndi einnig dómaravalið fyrir leikinn.

„Dómarinn í leiknum var bara að gera sitt allra besta. Ég skil ekki af hverju, þegar við erum á þessu stigi og það er svona mikið í húfi, að KSÍ setji ekki dómara úr efstu hillu á svona leik. Ég skil það ekki.“

„Það er ekki dómaranum að kenna að við töpum leiknum, það tek ég aftur fram, en hann hjálpaði okkur engan veginn.“

Höfðum fulla trú á að við gætum snúið þessu við
Þið voruð 2-0 undir í hálfleik. Hver voru skilaboðin til stelpnanna?

„Bara áfram gakk. Við höfum verið 2-0 undir í hálfleik og snúið því við áður, þannig að við höfðum fulla trú á því að við gætum gert það. En markið kom ekki og þess vegna fór þetta svona.“

„Eftir því sem fór að styttast í leiktímann fórum við eðlilega að fjölga fram á við. Við þurftum að vinna leikinn og fá eitthvað út úr honum til þess að eiga möguleika á titlinum. Þá gengu Þróttarar á lagið og nýttu sér þau svæði sem opnuðust.“



Draumurinn úti um Íslandsmeistaratitilinn
Nú er titilbaráttan í höndum Blikanna. Telurðu að þetta sé búið?

„Já, sjálfsagt. Þetta er algjörlega búið. Breiðablik er Íslandsmeistari árið 2026.“

Besta kvenna - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Breiðablik21+3046
2FH22+2543
3ÍBV22-930
4Þróttur R.22+329
5Grindavík/Njarðvík22-929
6Stjarnan21-127
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.