Fotbolti.net
18.10.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Heimsmeistararnir fá sekt vegna kynþáttafordóma

Heimsmeistararnir fá sekt vegna kynþáttafordóma
Canon

Mynd: Instagram

Hópur stuðningsmanna spænska landsliðsins hagaði sér illa þegar Spánn gerði markalaust jafntefli við Egyptaland í æfingalandsleik í lok mars. Leikurinn fór fram í nágrenni við Barcelona.
Spænsku áhorfendurnir voru sakaðir um kynþáttafordóma á meðan á leiknum stóð og hefur alþjóðafótboltasambandið FIFA hefur verið með málið til rannsóknar.

Þeir sungu niðrandi söngva um múslima á nokkrum tímapunktum og voru skilaboð gegn kynþáttafordómum birt í tvígang á risaskjáum vallarins. Skilaboðin uppskáru baul frá hluta áhorfenda.

Niðurstaðan er sú að Spánn fær um 18 þúsund evra sekt og neyðist til að loka hluta leikvangsins í næsta æfingalandsleik á heimavelli. Spænska landsliðið má selja miða í 85% sætanna en síðustu 15% verða að vera auð - nema að Spánn fái sérstaka undantekningu frá FIFA til að bjóða fjölskyldum, börnum og íþróttafélögum frímiða í lausu sætin.

Luis de la Fuente landsliðsþjálfari Spánar fordæmdi hegðun áhorfenda og sagði þá ekki vera raunverulega stuðningsmenn, heldur athyglissjúka og ofbeldisfulla fanta.

Næsti æfingalandsleikur Spánar á heimavelli fer annað hvort fram í júní eða næsta haust.

Egypska fótboltasambandið sagðist vera ofboðið vegna hegðun áhorfenda eftir jafnteflið í mars, en mun halda nánu samstarfi sínu við spænska fótboltasambandið áfram þrátt fyrir hegðun nokkurra slæmra epla.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.