Fotbolti.net
18.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ísland í dag - FH getur jafnað Blika á toppnum

Ísland í dag - FH getur jafnað Blika á toppnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
FH tekur á móti Þrótti R. í eina leik dagsins í íslenska boltanum og er mikið undir í Hafnarfirði.
FH þarf á sigri að halda í æsispennandi titilbaráttu, þar sem Hafnfirðingar eru þremur stigum á eftir Íslandsmeisturum Breiðabliks þegar tvær umferðir eru eftir.

FH getur jafnað Blika á stigum með sigri en þá munu þær grænklæddu eiga leik til góða. FH heimsækir svo Breiðablik í lokaumferðinni, í leik sem gæti ráðið úrslitum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

Markatala liðanna er svipuð sem eykur spennuna, en Þróttur situr í sjötta sæti og er einungis að spila upp á stoltið.

Besta kvenna - Efri hluti
11:00 FH-Þróttur R. (Kaplakrikavöllur)

Besta kvenna - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Breiðablik21+3046
2FH21+2943
3ÍBV22-930
4Grindavík/Njarðvík22-929
5Stjarnan21-127
6Þróttur R.21-126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.